Ég upplifði mjög sterkt að ég væri að bregðast
Sólveig Jónsdóttir greindist með brjóstakrabbamein í maí 2026 eftir að hafa fundið fyrirferð í brjóstinu fyrr á árinu. Hún hvetur fólk til að vera alltaf vakandi fyrir einkennum, líka í kjölfarið á skimun.
„Ég fer í reglubundna skimun í nóvember á síðasta ári,“ segir Sólveig Jónsdóttir, sem greindist með brjóstakrabbamein í maí. „Það sést ekki neitt og allt bara eðlilegt.“ Í febrúar á þessu ári fann Sólveig hins vegar fyrirferð í brjóstinu, en þar sem stutt var síðan hún hafði farið í skimun hvarflaði ekki að henni að um krabbamein gæti verið að ræða.
Hún var á þessum tíma mikið í kraftlyftingum og hélt að hún hefði kannski bara tekið aðeins of mikið á því. Þegar fyrirferðin virtist hvorki ætla að minnka né hverfa ákvað Sólveig að láta athuga málið og leitaði hún til læknis í maí. „Þá kemur þetta í ljós, að ég er með brjóstakrabbamein og að það eru komin meinvörp í eitla líka.“
Upplifði alls konar tilfinningar
Sólveig segist hafa upplifað alls konar tilfinningar, sem margar hafi komið aftan að henni. Hún var hrædd, en upplifði líka þakklæti fyrir að hún sjálf væri að greinast en ekki börnin hennar, foreldrar eða systkini.
„Annað sem líka kom mér svolítið á óvart var að ég upplifði mjög sterkt að ég væri að bregðast. Mér fannst ég vera að bregðast börnunum mínum og nú væri allt einhvern veginn að fara að breytast.“ Hún hitti ráðgjafa hjá Krabbameinsfélaginu, sem sagði henni að margir upplifðu svipaða tilfinningu. „Þarna byrjar að kvikna rosa falleg tilfinning um að maður er ekki einn í þessu ferli.“
Tapar aldrei á að láta tékka
„Það sem ég held að sé rosalega mikilvægt er að vera vakandi fyrir einkennum, alveg sama hvenær það er,“ segir Sólveig. „Eins og í mínu tilfelli, af því að ég einhvern veginn gerði ráð fyrir að þetta væri ekki brjóstakrabbamein af því ég var svo nýkomin úr skimun. Þannig að ég held bara það að vera alltaf vakandi og láta tékka af því að þú tapar aldrei neitt á því.“
