Beint í efni
Forsíðumynd fyrir reynslusögu Rósu Bjargar.

Ég vissi sjálf að það var ekki í lagi

Rósa Björg Karlsdóttir greindist með langt gengið krabbamein í endaþarmi, ristli, leghálsi og eitlum. Greiningarferlið var erfitt og á endanum þurfti að setja upp stóma.

„Ferlið að greiningu hafði verið mjög þungt og erfitt,“ segir Rósa Björg Karlsdóttir, sem greindist haustið 2009 með langt gengið krabbamein. „Ég vissi sjálf að það var ekki í lagi, en ég labbaði á milli lækna ítrekað. Svarið var alltaf það sama.“ Rósu Björgu var sagt að hún væri ung og heilbrigð. „Einn sagði mér að fara að hreyfa mig meira og hætta að drekka kók.“

Rósa Björg segist hafa upplifað uppgjöf á þeim tímapunkti. „Ég átti orðið mjög erfitt með að stunda vinnu og á þessum tíma fannst heimilislækni heldur ekki ástæða að senda mig til meltingarlæknis.“ Þó leið henni eins og líf hennar væri farið að snúast um hvar hún kæmist á næsta klósett.

Það þurfti á endanum að fjarlægja stóra hluta af ristli, endaþarmi og leghálsi hjá henni og setja upp stóma. „Þetta var alveg erfitt en sem betur fer þá tókst mér að nýta bara kraftinn og stuðninginn frá manni og dætrum.“ Þá hjálpaði það henni einnig að hafa verið í góðu formi fyrir. „Ég er alveg sannfærð um það að fyrst einhver þurfti að veikjast svona þá var kannski bara gott að það var ég af því ég vissi að ég var í góðu líkamlegu ástandi.“

Þakklæti er Rósu Björg einnig ofarlega í huga. „Dætur mínar og maðurinn minn eru svo stolt af mér. Þetta er bara okkar verkefni í þessu lífi og við megum bara aldrei hætta að lifa og vera þakklát.“