Beint í efni
Forsíðumynd fyrir reynslusögu.

Ég er full af lífs­þrótti og vil eiga fullt af árum í við­bót

Lára Árnadóttir hefur þrisvar sinnum greinst með krabbamein. Hún er þakklát fyrir lífið og fyrir að hafa þekkt sinn líkama og hlustað á einkennin.

„Sá sem ómaði tjáði mér að þetta væri mjög eðlilegt fyrir konu á mínum aldri,“ segir Lára Árnadóttir, en hún var þá búin að vera í rannsóknum vegna bólgu á hálsi. Níu árum síðar var hún orðin mjög máttfarin og fékk þá lyf til að stilla skjaldkirtilinn af, en einu og hálfu ári seinna var hún aftur farin að finna fyrir einkennum og leitaði þá aftur til læknis. „Við þekktumst orðið það vel að hann ákveður að láta stinga á þessu aftur og þá kemur í ljós að ég er með illkynja krabbamein.

Krabbameinið var því miður búið að dreifa sér út fyrir kirtilinn og segir Lára að hún hefði viljað að meinið hefði uppgötvast fyrr. „Það hefði verið betra að það hefði verið tekið mark á þessu þarna tveimur árum fyrr og gert eitthvað í þessu.“ Hún greindist síðan aftur 59 ára, en var þá farin að þekkja einkennin. „Það er þessi litli hiti, beinverkir og orkan er minni.“ Hún var þá í hlaupahópi og mikið að hreyfa sig. „Ég ætlaði að fara að taka þátt í maraþoni og þá kemur í ljós að ég er með krabbamein í legi.“

Tíu árum síðar fann Lára aftur fyrir kunnuglegum einkennum. „Ég get eiginlega ekki hlaupið, ég er að reyna að hreyfa mig, alltaf þreytt.“ Síðan greindist hún með illkynja ristilkrabbamein. „Ég trúi á almættið og held að það hafi bara verið verndarhendi yfir mér þarna.“ Hún segist þakklát fyrir lífið og fyrir að hafa þekkt sinn líkama og hlustað á einkennin. „Ég er íþróttakona, ég vil hreyfa mig. Ég er full af lífsþrótti og vil eiga fullt af árum í viðbót.“