Framfarasjóður
Framfarasjóður Krabbameinsfélags Íslands tók formlega til starfa í ágúst 2026. Tilgangur sjóðsins er að bæta þjónustu við fólk með krabbamein og aðstandendur þess, með og eftir krabbamein og efla forvarnir gegn krabbameinum. Sjóðurinn mun styrkja med fjárframlögum ný verkefni sem ætlað er að bæta þjónustu við fólk við greiningu og meðferð krabbameina og að lokinni krabbameinsmeðferð auk nýrra verkefna til forvarna gegn krabbameinum.
Stjórn Framfarasjóðs
Samkvæmt skipulagsskrá sjóðsins skulu þrír einstaklingar tilnefndir í stjórn til þriggja ára í senn af stjórn Krabbameinsfélags Íslands og tveir til vara. Formaður skal skipadur sérstaklega en aðrir stjórnarmenn skipta með sér verkum. Enginn getur setið í stjórn Framfarasjóðs lengur en sex ár í senn.
Núverandi stjórn er þannig skipuð:
- Sigríður Mogensen, formaður, sviðsstjóri Samtaka iðnaðarins.
- Rögnvaldur Sæmundsson, aðstoðarrektor Háskóla Íslands.
- Vala Smáradóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélags höfuðborgarsvæðisins.
Varamenn:
- Arnar Árnason, endurskoðandi.
- Hrefna Eyþórsdóttir, formaður Krabbameinsfélags Austfjarða.
Fagráð Framfarasjóðs Krabbameinsfélagsins
Eftirtaldir aðilar skipa Fagráð Framfarasjóðs Krabbameinsfélagsins:
- Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja.
- Guðmundur Oddgeirsson, formaður Krabbameinsfélagsins Framfarar.
- Hanna Kristín Guðjónsdóttir, hjúkrunarfræðingur og sérfræðingur í upplýsingatækni.
- Jakob Jóhannsson, krabbameinslæknir.
- Margrét Helga Ögmundsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands.
