Þakklæti og ný sýn
Ekki má gleyma að þrátt fyrir að margar erfiðar hugsanir og tilfinningar geti fylgt því að eiga ástvin sem greinist með krabbamein upplifa margir líka jákvæðar tilfinningar.
Þessar tilfinningar geta falist í þakklæti fyrir að krabbameinið uppgötvaðist eða þakklæti fyrir stuðning og kærleika frá vinum og vandamönnum eða heilbrigðisstarfsfólki eða öðrum fagaðilum. Það er líka algegnt að fólk tjái sig um að sýnin á það sem skiptir mestu máli í lífinu skerpist við svona reynslu.
Ráðgjöf og stuðningur þér að kostnaðarlausu
Þjónusta félagsráðgjafa, hjúkrunarfræðinga og sálfræðinga Krabbameinsfélagsins er í boði í greiningarferli, meðferð eða að lokinni meðferð, á íslensku, ensku og pólsku. Þjónustan er líka fyrir aðstandendur.