Beint í efni

Fyrstu við­brögð hjá að­stand­end­um

Það er misjafnt hvernig fyrstu viðbrögð koma fram hjá aðstandendum þegar einhver nákominn greinist með krabbamein.

 Sumir dofna tilfinningalega og stundum líkamlega líka sem er eðlilegt viðbragð við áfalli. Dofinn getur jafnvel hjálpað á meðan við erum ekki tilbúin að takast á við sterkar tilfinningar. Aðrir upplifa hins vegar strax mikið tilfinningalegt uppnám  sem er einnig eðlilegt við þessar kringumstæður. Oft er vonin og vissan um að hægt verði að lækna krabbameinið strax sterk sem skilar sér þá oft í meiri ró og yfirvegun. Það er því ekki hægt að tala um að einhver ein viðbrögð séu rétt eða röng en það að þekkja litróf þeirra getur hjálpað við að skilja betur það sem þú og aðrir í kringum þig eruð að upplifa.

Ráð­gjöf og stuðn­ing­ur þér að kostn­að­ar­lausu

Þjónusta félagsráðgjafa, hjúkrunarfræðinga og sálfræðinga Krabbameinsfélagsins er í boði í greiningarferli, meðferð eða að lokinni meðferð, á íslensku, ensku og pólsku. Þjónustan er líka fyrir aðstandendur.