Eirðarleysi, minnistruflanir og líkamleg einkenni
Það er mjög algengt að aðstandendur finni fyrir eirðarleysi og eigi erfitt með muna hluti og einbeita sér.
Þetta er því eitthvað sem er eðlilegt að upplifa eftir áföll og þegar streitan er mikil og því full ástæða til að sýna sér umburðarlyndi.
Stundum koma viðbrögðin líka fram í líkamanum, til að mynda í vöðvaspennu eða vöðvabólgu, þreytu, mæði, svefntruflunum eða einkennum frá hjarta. Það er alltaf ráðlegt að leita til læknis ef einkenni ganga ekki yfir og mikilvægt að leita sér strax hjálpar vegna einkenna frá hjarta.
Ráðgjöf og stuðningur þér að kostnaðarlausu
Þjónusta félagsráðgjafa, hjúkrunarfræðinga og sálfræðinga Krabbameinsfélagsins er í boði í greiningarferli, meðferð eða að lokinni meðferð, á íslensku, ensku og pólsku. Þjónustan er líka fyrir aðstandendur.