Beint í efni

Stutt í tárin eða reiði

Á meðan margir upplifa sig vera viðkvæma og að stutt sé í tárin eftir áfallið eru aðrir sem upplifa reiði sem getur ýmist beinst að heilbrigðiskerfinu, sér sjálfum, þeim sem greinist með krabbameinið eða bara lífinu og almættinu.

Oft er hægt að finna reiðinni farveg á uppbyggilegan hátt og stundum gefur hún þann kraft sem þarf til að taka skrefin áfram. Ef reiðin verður hins vegar viðvarandi ástand getur hún orðið lamandi og haft margvísleg neikvæð áhrif á lífið. Þá getur verið rétt að leita sér faglegrar hjálpar. Vert er að hafa í huga að oft er reiðin afleiðing af ótta, kvíða eða sorg.

Ráð­gjöf og stuðn­ing­ur þér að kostn­að­ar­lausu

Þjónusta félagsráðgjafa, hjúkrunarfræðinga og sálfræðinga Krabbameinsfélagsins er í boði í greiningarferli, meðferð eða að lokinni meðferð, á íslensku, ensku og pólsku. Þjónustan er líka fyrir aðstandendur.