Að fá fast land undir fæturnar
Við bregðumst við á mismunandi hátt við áföllum.
En það getur líka haft áhrif á viðbrögðin hvernig sambandinu við einstaklinginn sem greinist með krabbameinið er háttað. Einnig getur skipt máli hversu alvarleg eða umfangsmikil veikindi hans eru og hvernig honum líður almennt í veikindunum og í meðferðinni vegna þeirra.
Margir tala um að erfiðasti tíminn sé á meðan óvissa ríkir um það sem tekur við eftir að krabbamein er greint. Oft þarf að framkvæma vissar rannsóknir áður en hægt er að ákveða hvernig framhaldinu verði háttað. Þetta á þó ekki við í öllum tilvikum.
Þegar niðurstöður liggja fyrirog búið er að leggja upp áætlun varðandi hvernig skuli meðhöndla krabbameinið upplifir fólk gjarnan vissan létti og lýsir því þannig að það fá aftur fast land undir fæturnar þótt eðlilegt sé að upplifa sveiflur í andlegri líðan í ferlinu sem tekur við og jafnvel eftir að því er lokið.
Ráðgjöf og stuðningur þér að kostnaðarlausu
Þjónusta félagsráðgjafa, hjúkrunarfræðinga og sálfræðinga Krabbameinsfélagsins er í boði í greiningarferli, meðferð eða að lokinni meðferð, á íslensku, ensku og pólsku. Þjónustan er líka fyrir aðstandendur.