Beint í efni
Áhyggjufullur maður

Ótti, dep­urð, kvíði, sorg, óvissa og ein­mana­kennd

Það er eðlilegt að upplifa rússíbana af tilfinningum og hugsunum sem sveiflast gjarnan á milli vonar og vonleysis.

Þú gætir fundið fyrir ótta og kvíða fyrir því sem framundan er eða gagnvart hlutum sem venjulega vekja ekki með þér kvíða. Oft er það óvissan sem einkennir lífið fyrst á eftir greiningu sem veldur kvíða.

 Það er líka eðlilegt að upplifa depurð eða jafnvel sorg yfir aðstæðunum og því getur fylgt minni áhugi eða gleði fyrir hlutum sem yfirleitt eru nærandi og gefandi fyrir þig.  Mörgum líður eins og lífið standi allt í einu í stað á meðan það heldur áfram sinn vanagang hjá öðrum og þá er eðlilegt að finna til einmanakenndar og söknuðar eftir lífinu eins og það var áður en ástvinurinn greindist 

Ráð­gjöf og stuðn­ing­ur þér að kostn­að­ar­lausu

Þjónusta félagsráðgjafa, hjúkrunarfræðinga og sálfræðinga Krabbameinsfélagsins er í boði í greiningarferli, meðferð eða að lokinni meðferð, á íslensku, ensku og pólsku. Þjónustan er líka fyrir aðstandendur.