Beint í efni
Hlíf Steingrímsdóttir og Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir

Við­burð­ar­ík og ánægju­leg helgi að baki

Krabbameinsfélagið fagnar 75 ára afmæli í ár. Af því tilefni hófst aðalfundur félagsins þann 9. maí síðastliðinn á ávarpi Forseta Íslands, frú Höllu Tómasdóttur. 

Annríki einkenndi síðastliðna helgi í Skógarhlíðinni, en hún hófst með formannafundi aðildarfélaga Krabbameinsfélagsins á föstudag og lauk með þéttsetnum aðalfundi félagsins síðdegis á laugardag. Einnig stóð félagið fyrir áhugaverðu málþingi um lýðheilsu sem sveitarstjórnarmál undir yfirskriftinni Eru krabbameinsforvarnir sveitarstjórnarmál? og veitti Samfélagsviðurkenningu sína í fimmta sinn.

Lýðheilsa sveitarfélaga í forgrunni á málþingi 

Á málþingi félagsins fór Helga María Pálsdóttir, sviðsstjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga, yfir lögbundin og ólögbundin hlutverk sveitarfélaga. Í erindi hennar kom meðal annars fram að  sveitarfélögin hafa ekki eitt bundið og afmarkað hlutverk í lýðheilsumálum samkvæmt lögum, en bera víðtæka ábyrgð á fjölmörgum þáttum sem hafa bein áhrif á lýðheilsu íbúa.  

Gígja Gunnarsdóttir hjá embætti landlæknis tengdi umræðuna síðan við ýmis verkefni á vegum embættisins á borð við verkefnið Heilsueflandi samfélag (HSAM) sem mikill meirihluti sveitarfélaga á landinu tekur þátt í, eða um 96%. Með undirritun samstarfssamnings – skuldbinda sveitarfélögin sig til að vinna í samræmi við meginmarkmið og leiðarljós HSAM. 

Sigrún Elva Einarsdóttir, teymisstjóri fræðslu og forvarna hjá Krabbameinsfélaginu kynnti alþjóðlegar og evrópskar ráðleggingar. Í nýjustu útgáfu þeirra er aukin áhersla á hlutverk stjórnvalda til að móta ytri kringumstæður í samfélaginu þannig að líklegra sé að einstaklingar fari eftir þeim ráðleggingum sem til þeirra er beint. Er þá einkum horft til stjórnvaldsaðgerða og stefnumótunar.  

Hrefna Eyþórsdóttir, formaður Krabbameinsfélags Austfjarða, sagði frá öflugum lýðheilsuverkefnum í Fjarðabyggð. Þar hefur félagið undirritað samkomulag við sveitarfélagið um að bjóða fólki í virkri meðferð við krabbameini frítt í sund og líkamsrækt. Boðið stendur allt þar til ári eftir að meðferð lýkur.  

Ása Sigríður Þórisdóttir, kynningarstjóri Krabbameinsfélagsins, lauk málþinginu síðan með kynningu á niðurstöðum úr könnun meðal framboða til sveitarstjórnarkosninga um afstöðu þeirra til heilsueflandi lýðheilsuaðgerða sem dregið geta úr líkum á krabbameinum.

Samfélagsviðurkenning 2026

Aðdáunarverður árangur á Suðurnesjum 

Að málþinginu loknu var Samfélagsviðurkenning Krabbameinsfélagsins veitt í  fimmta sinn. Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, Samtök atvinnurekenda á Reykjanesi og Félag kvenna í atvinnulífinu á Suðurnesjum eru handhafar viðurkenningarinnar að þessu sinni, fyrir átaksverkefni sitt tengt því að auka þátttöku kvenna á Suðurnesjum í skimunum. Með samstilltu átaki fór þátttakan úr 40% árið 2022 í 55% árið 2025 og tvöfaldaðist þátttaka kvenna af erlendum uppruna.    

Læknavísindin og kærleikurinn haldist í hendur 

Forseti Íslands, frú Halla Tómasdóttir, setti aðalfund Krabbameinsfélagsins að þessu sinni. Í ávarpi sínu fór forseti yfir hlutverk félagsins í gegnum tíðina og hvernig starfsemin er skýrt merki um þann samtakamátt sem einkennir Íslendinga. Hún undirstrikaði einnig hversu mikilvægur kærleikurinn er í umönnun fólks með krabbamein og aðstandenda þeirra. 

„Baráttan við krabbamein er bæði líkamleg og andleg og í umönnun sjúklinga og aðstandenda þurfa læknavísindin og kærleikurinn að haldast í hendur. Þekking, mannleg snerting og hugrekki eru ekki aukaatriði heldur hluti af meðferðinni og batahorfunum. Og þarna liggur einn kjarninn í starfi Krabbameinsfélagsins, og fjölmargra annarra almannaheillasamtaka. Verkefnið er að breyta ótta í þekkingu, einmanaleika í samstöðu og óvissu í von.“ 

Ný stjórn kjörin 

Á fundinum var stiklað á stóru yfir starfsemina á árinu auk hefðbundinna aðalfundarstarfa. Breyting varð á stjórn félagsins, en Vala Smáradóttir, meðstjórnandi, og Eygló Kristjánsdóttir, varamaður, gáfu ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarstarfa. Í þeirra stað voru einróma kosnar þær Jóhanna S. Kristjánsdóttir, meðstjórnandi, og Þórhalla Ágústsdóttir, varamaður. Við þökkum þeim Völu og Eygló kærlega fyrir sín störf um leið og við bjóðum velkomnar þær Jóhönnu og Þórhöllu. 

Aðalfundur 2026

75 milljónir til verkefna tengdum krabbameinsáætlun 

Tvær ályktanir voru bornar upp til samþykktar á fundinum, annars vegar um forvarnir og mikilvægi þess að lýðheilsa sé ávallt í forgrunni þegar teknar eru mikilvægar stefnumótandi ákvarðanir, og hins vegar um aðgerðaáætlun í krabbameinsmálum. Í þeirri síðarnefndu var tilkynnt um áform Krabbameinsfélagsins um að veita 75 milljón króna fjárveitingu til að tryggja að metnaðarfull markmið aðgerðaáætlunarinnar raungerist.