Samfélagsviðurkenning fyrir aðdáunarverðan árangur af átaksverkefni á Suðurnesjum
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS), Samtök atvinnurekenda á Reykjanesi og Félag kvenna í atvinnulífinu á Suðurnesjum eru handhafar Samfélagsviðurkenningar Krabbameinsfélagsins 2026.
Samfélagsviðurkenning Krabbameinsfélagsins var veitt í fimmta sinn laugardaginn 9. maí, í tengslum við aðalfund félagsins. Viðurkenningin er veitt þeim aðilum sem félagið telur að hafi með eftirtektarverðum hætti lagt baráttunni gegn krabbameinum lið.
„Frumkvæði Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja og mikilvægt samstarf hennar við fyrirtæki á svæðinu hefur skilað sýnilegum árangri,“ segir Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins. „Átaksverkefni þeirra undirstrikar mikilvægi þess að fólk, fyrirtæki og stofnanir taki höndum saman, því þannig næst árangur og allir vinna. Við vonum að frumkvæði, elja og árangur þeirra blási sveitarfélögum og fyrirtækjum um allt land byr í brjóst.“
Skimun er forvörn
Reglubundin þátttaka í skimunum er ein besta forvörn sem við höfum aðgang að, en með skimun er hægt að greina krabbamein fyrr en ella, jafnvel á forstigi. Skimun eykur þannig líkur á að meðhöndlun sé árangursrík og getur einnig leitt til þess að inngrip verði minna íþyngjandi og horfur betri.
Þátttaka kvenna í skimunum fyrir brjóstakrabbameini og leghálskrabbameini er á uppleið og má meðal annars rekja þann árangur til aukinnar hvatningar til þátttöku, ásamt markvissum aðgerðum á borð við lækkun skimunargjalds. Þátttaka íslenskra kvenna er þó enn undir settum markmiðum og einnig undir meðaltali á hinum Norðurlöndunum.



Samstillt átak til að auka þátttöku
Á Suðurnesjum hefur þátttaka verið með lægsta móti, en árið 2022 var hún 40%. Með samstilltu átaki að frumkvæði Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja hefur þátttakan aukist verulega. Árið 2025 var hún 55% og hefur þátttaka kvenna af erlendum uppruna tvöfaldast.
Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja, tók við viðurkenningunni fyrir hönd stofnunarinnar. Hún sagði ljóst að breytinga hefði verið þörf og að mikill hljómgrunnur hefði verið fyrir þeim meðal atvinnurekenda og hjá Félagi kvenna í atvinnurekstri að auðvelda konum að skreppa í skimun. Það hefur einmitt verið inntak hvatningarherferðar Brjóstamiðstöðvar Landspítala og Krabbameinsfélags höfuðborgarsvæðisins.
„Samfélagið er tilbúið í þessa vegferð og við ætlum okkur að ná landsmeðaltali og jafnvel hækka það,” sagði Guðlaug Rakel við afhendinguna. „Við þurfum öll að hjálpast að og tala einum rómi.“
Hún lýsti einnig árangursríku samstarfi við Brjóstamiðstöð Landspítala sem hefur komið með tæki og sérþjálfaða geislafræðinga á heilbrigðisstofnunina en að vilji væri auk þess til þess á Suðurnesjum að fá tæki til brjóstamyndatöku sem væri staðsett þar og að þjálfa geislafræðinga á staðnum til að taka myndirnar. Ingvar Eyfjörð tók við viðurkenningunni fyrir hönd Samtaka atvinnurekenda á Reykjanesi og Fida Abu Libdeh fyrir hönd Félags kvenna í atvinnulífinu á Suðurnesjum. Þau tóku einnig undir orð Guðlaugar Rakelar um samfélagslegt mikilvægi verkefnisins og árangur þess. Þau nýttu einnig tækifærið til að hrósa Guðlaugu Rakel fyrir hennar framlag til samfélagsins eftir að hún tók við sem forstjóri HSS.
Með samfélagsviðurkenningu Krabbameinsfélagsins fylgir hvatning til áframhaldandi góðra verka og enn betri árangurs í framtíðinni
Samfélagsviðurkenning Krabbameinsfélagsins var fyrst veitt árið 2022

Samfélagsviðurkenningu Krabbameinsfélagsins 2025 fengu Íslandsbanki og Össur sem hafa gert starfsfólki sínu kleift að láta gott af sér leiða, í vinnutímanum og verið fyrirmyndir annarra á þessu sviði. Sjá nánar.

Samfélagsviðurkenningu Krabbameinsfélagsins 2024 fékk starfsfólk sjúkrahúsa um land allt fyrir að leggja sig fram, gera sitt besta og örlítið meira en það fyrir fólk sem er að takast á við krabbamein. Sjá nánar.

Samfélagsviðurkenning Krabbameinsfélagsins árið 2023 hlutu Valdimar Högni Róbertsson og RÚV fyrir einstakt framlag sitt til fræðslu um krabbamein. Sjá nánar.

Samfélagsviðurkenningu Krabbameinsfélagsins árið 2022 hlutu þær Jónína Edda Sævarsdóttir, forsprakki undirskriftasöfnunar vegna breytinga á skimunum fyrir brjóstakrabbameini, Elín Sandra Skúladóttir, formaður Krafts, stuðningsfélags fyrir ungt fólk með krabbamein og Erna Bjarnadóttir forsprakki hópsins Aðför að heilsu kvenna, fyrir að stíga fram og skapa vettvang fyrir fólkið í landinu til að sýna í orði og verki að skimanir fyrir krabbameinum skipta máli. Sjá nánar.
