Beint í efni
Það voru þær Edda Hermannsdóttir, markaðs- og samskiptastjóri Íslandsbanka og Margrét Lára Friðriksdóttir, framkvæmdastjóri mannauðs, stefnu- og sjálfbærnimálefna hjá Össuri fyrir hönd Össurar veitti viðurkenningunni viðtöku.

Sam­fé­lags­við­ur­kenn­ing Krabba­meins­fé­lags­ins veitt í fjórða sinn

Íslandsbanki og Össur eru handhafar Samfélagsviðurkenningar Krabbameinsfélagsins að þessu sinni. Viðurkenningin er veitt þeim aðilum sem félaginu þykir hafa lagt baráttunni gegn krabbameinum lið með eftirtektarverðum hætti. Viðurkenningin var veitt 24. maí síðastliðinn. 

Sjálfboðaliðar veita hjálparhönd 

Framlag sjálfboðaliða til starfsemi Krabbameinsfélagsins er á mörgum sviðum. Oft er handagangur í öskjunni hjá litlu félagi með stór og mikilvæg markmið og þá getur verið dýrmætt að njóta aðstoðar þeirra sem láta sig málstaðinn varða og eru óhræddir við að láta hendur standa fram úr ermum. 

Í nútímasamfélagi er hraðinn einnig mikill og oft á fólk lítinn tíma aflögu til að sinna sínum hugðarefnum. Þá getur verið afar dýrmætt að starfa hjá fyrirtæki sem tekur samfélagslega ábyrgð sína alvarlega. Íslandsbanki og Össur eru tvö fyrirtæki sem gera starfsfólki sínu kleift að láta gott af sér leiða, í vinnutímanum. Krabbameinsfélagið vill með veitingu viðurkenningarinnar þakka þessum fyrirtækjum fyrir að vera fyrirmyndir annarra á þessu sviði. 

Það voru þær Edda Hermannsdóttir, markaðs- og samskiptastjóri Íslandsbanka og Margrét Lára Friðriksdóttir, framkvæmdastjóri mannauðs, stefnu- og sjálfbærnimálefna hjá Össuri fyrir hönd Össurar veitti viðurkenningunni viðtöku. 

Samfélagsviðurkenning Krabbameinsfélagsins afhent 24. maí 2025

Einn vinnudagur á ári í sjálfboðavinnu 

Íslandsbanki hefur um árabil boðið starfsfólki sínu að leggja sitt af mörkum til góðgerðamála í gegnum verkefni sem heitir Hjálparhönd. Fær starfsfólk að verja einum launuðum vinnudegi á ári í þágu góðs málefnis. Krabbameinsfélagið hefur notið liðsinnis Hjálparhandarinnar þegar starfsfólk Íslandsbanka hefur komið sem dýrmætur liðsauki á annasömustu tímunum á árinu, þegar árvekniátök Krabbameinsfélagsins standa yfir. 

Össur hefur sömuleiðis lagt ríka áherslu á samfélagslega ábyrgð í gegnum Sjálfboðaliðadaginn Give Back verkefni sitt sem nær út fyrir landsteinana. Starfsfólk er hvatt til að finna samtök eða félög í nærsamfélagi sínu sem þurfa á aðstoð að halda og fær einn vinnudag á ári til að sinna sjálfboðavinnu á launum. Segja má að starfsfólk Össurar hafi nánast tekið upp á sína arma ákveðin verkefni hjá Krabbameinsfélaginu í tengslum við Mottumars og Bleiku slaufuna. 

Krabbameinsfélagið færir öllum sjálfboðaliðum fyrirtækjanna sem hafa lagt hönd á plóg í gegnum tíðina hjartans þakkir fyrir sitt framlag. 

Samfélagsviðurkenning 2025
Samfélagsviðurkenning Krabbameinsfélagsins 2025
Samfélagsviðurkenning Krabbameinsfélagsins 2025

Samfélagsviðurkenning Krabbameinsfélagsins var fyrst veitt árið 2022 og var því veitt í fjórða sinn í ár.

Samfélagsviðurkenning 2024_3

Samfélagsviðurkenningu Krabbameinsfélagsins 2024 fékk starfsfólk sjúkrahúsa um land allt fyrir að leggja sig fram, gera sitt besta og örlítið meira en það fyrir fólk sem er að takast á við krabbamein. Sjá nánar.

Valdimar Högni Róbertsson hlaðvarpsstjóri og Karitas Mörtudóttir Bjarkadóttir, ritstjóri Krakkarúv.

Samfélagsviðurkenning Krabbameinsfélagsins árið 2023 hlutu Valdimar Högni Róbertsson og RÚV fyrir einstakt framlag sitt til fræðslu um krabbamein. Sjá nánar.

Samfélagsviðurkenning Krabbameinsfélagsins 2022

Samfélagsviðurkenningu Krabbameinsfélagsins árið 2022 hlutu þær Jónína Edda Sævarsdóttir, forsprakki undirskriftasöfnunar vegna breytinga á skimunum fyrir brjóstakrabbameini, Elín Sandra Skúladóttir, formaður Krafts, stuðningsfélags fyrir ungt fólk með krabbamein og Erna Bjarnadóttir forsprakki hópsins Aðför að heilsu kvenna, fyrir að stíga fram og skapa vettvang fyrir fólkið í landinu til að sýna í orði og verki að skimanir fyrir krabbameinum skipta máli. Sjá nánar.