Leyfum lýðheilsu að njóta vafans
Aðalfundur Krabbameinsfélagsins skorar á stjórnvöld að taka tillit til áhrifa á lýðheilsu í allri stefnumótun og hafa þolinmæði til að bíða eftir árangrinum.
Þéttsetinn aðalfundur Krabbameinsfélagsins þann 9. maí síðastliðinn samþykkti einróma ályktun sem fjallar um mikilvægi þess að hagnýta þekkingu um þá þætti sem hafa áhrif á krabbameinsáhættu, sérstaklega lífstílstengda þætti. Auk þess var tæpt á mikilvægi þess að stjórnvöld, heilbrigðisþjónusta og einstaklingar vinni saman að því markmiði að draga úr samfélags- og efnahagslegum áhrifum krabbameina.
Mörg lítil skref koma miklu til leiðar
Fyrirséð fjölgun krabbameinstilvika hér á landi á næstu árum verður áskorun fyrir heilbrigðisþjónustuna í landinu sem í dag tekst á við skort á aðstöðu, tækjabúnaði, mönnun og fjármögnun nýjustu lyfja. Hvert einasta tilvik sem hægt er að koma í veg fyrir skiptir máli og mörg lítil skref geta komið miklu til leiðar.
Á sama tíma er eðli forvarna þannig að áhrifin koma ekki endilega fram fyrr en eftir talsvert mörg ár. Við vitum að með því að auka hreyfingu, bæta mataræði, draga úr ofþyngd, huga að sólarvörnum, koma í veg fyrir aukna áfengis-, tóbaks- og nikótínneyslu og auka mætingu í skimanir getum við fækkað krabbameinum. Þörf er á margvíslegum aðgerðum á mismunandi sviðum og mikilvægt að muna að þolinmæði er nauðsynleg.
Þá er gagnlegt að líta til þess árangurs sem náðist í tóbaksvörnum og voru á sínum tíma afar umdeildar en hafa fyrir löngu sannað gildi sitt.
Stjórnvöld hafa hlutverki að gegna
Heilbrigðisráðherra hefur stigið fastar niður í forvarnarmálum heldur en við höfum lengi séð og í könnun sem Krabbameinsfélagið lét framkvæma meðal framboða til sveitarstjórna var ljóst að framboð til sveitarstjórna líta svo á að þau hafi hlutverki að gegna þegar kemur að bættri lýðheilsu.
Ályktunin er ekki síst hvatning til heilbrigðisráðherra og til annarra stjórnvalda að halda áfram á sömu braut og hafa lýðheilsusjónarmið í forgangi þegar teknar eru mikilvægar ákvarðanir. Horfa ekki framhjá því að þau geta komið í veg fyrir krabbamein með markvissum aðgerðum. Tökum mark á gagnreyndri þekkingu og leyfum lýðheilsu að njóta vafans, því lífið liggur við.
Ályktunin í heild sinni:
Krabbameinsfélagið spáir mun meiri fjölgun krabbameinstilvika hér á landi á næstu árum en í nágrannalöndunum og í Evrópu. Fyrirséð er að fjölgunin verður veruleg áskorun fyrir heilbrigðisþjónustuna í landinu sem í dag tekst á við skort á aðstöðu, tækjabúnaði, mönnun og fjármögnun nýjustu lyfja. Að tryggja jafnt aðgengi fólks, óháð búsetu, uppruna og samfélagsstöðu að bestu fáanlegu meðferð og heilbrigðisþjónustu á heimsmælikvarða er stórt verkefni. Brýnt er að grípa til aðgerða strax, því áhrifin koma ekki fram fyrr en síðar.
Samhliða búum við yfir meiri og meiri þekkingu um þá þætti sem hafa áhrif á krabbameinsáhættu, sérstaklega lífsstílstengda þætti. Engin ein töfralausn er til. Til að fækka krabbameinum þarf að hagnýta þá þekkingu sem til er og beita fjölbreyttum leiðum þar sem stjórnvöld, heilbrigðisþjónusta og einstaklingar taka höndum saman.
Heilbrigðisráðherra hefur stigið fastar niður í forvarnarmálum en við höfum lengi séð, til dæmis með aðgerðaáætlun um offitu. Í könnun Krabbameinsfélagsins meðal framboða til sveitarstjórna var niðurstaðan auk þess nánast einróma; fulltrúar framboðanna líta svo á að sveitarfélög geti fækkað krabbameinstilvikum með því að stuðla að bættri lýðheilsu meðal íbúa.
Hvert einasta tilvik sem hægt er að koma í veg fyrir skiptir máli og mörg lítil skref geta komið okkur langt. Það er glapræði að hagnýta ekki þá þekkingu sem til er, til að fækka krabbameinstilvikum.
Með því að taka lítil skref á mörgum stöðum til að auka hreyfingu, bæta mataræði, draga úr ofþyngd, koma í veg fyrir aukna áfengisneyslu, auka sólarvarnir, draga úr tóbaks- og nikótínneyslu og auka mætingu í skimanir getum við fækkað krabbameinum. Árangurs er ekki að vænta um leið og kemur líklega ekki fram fyrr en eftir talsvert mörg ár. Það er hins vegar mikilvægt að við látum það ekki draga úr okkur.
Krabbameinsfélagið hvetur heilbrigðisráðherra til að halda áfram á sömu braut og hafa bætta lýðheilsu í forgrunni. Félagið hvetur líka önnur stjórnvöld til að horfa ekki framhjá því að við getum komið í veg fyrir krabbamein heldur þvert á móti, að taka mark á gagnreyndri þekkingu til að vinna gegn fjölgun krabbameina. Leyfum lýðheilsu að njóta vafans og setjum í forgang að taka tillit til áhrifa á hana þegar teknar eru mikilvægar ákvarðanir, líkt og langstærsti hluti framboða til sveitarstjórna lýsti í könnun félagsins. Við hlökkum til að vinna með nýjum sveitarstjórnum að krabbameinsforvörnum í nærumhverfi fólks.
Sýnum kjark og höfum þolinmæði til að bíða eftir árangrinum. Stöndum með þekkingunni og bættri lýðheilsu, til að draga úr krabbameinum til framtíðar og samfélags- og efnhagslegum áhrifum sem þeim fylgja. Lífið liggur við.
