Beint í efni

Tryggja þarf að að­gerða­áætl­un í krabba­meins­mál­um verði að veru­leika

Aðalfundur Krabbameinsfélagsins skorar á stjórnvöld að tryggja að markmið aðgerðaáætlunar í krabbameinsmálum raungerist. Félagið er tilbúið að veita allt að 75 milljónum til að styðja við framkvæmdina. 

Aðalfundur Krabbameinsfélagsins, þann 9. maí síðastliðinn, samþykkti einróma ályktun um mikilvægi aðgerðaáætlunar í krabbameinsmálum fyrir árin 2025 til 2029. Krabbameinsfélagið hefur barist fyrir íslenskri krabbameinsáætlun í meira en áratug og það var því mikið gleðiefni þegar aðgerðaáætlunin var samhljóða samþykkt á Alþingi í fyrravor.  

Áætlunin inniheldur metnaðarfull markmið og er það mat félagsins að þau muni tæplega raungerast án viðbótarfjármögnunar, Félagið er tilbúið til að veita allt að 75 milljónum til framkvæmdarinnar, með sérstöku samkomulagi við heilbrigðisráðherra um tímasett markmið, áherslur og reglulega eftirfylgd með mælikvörðum. 

Ályktunin í heild sinni: 

Aðgerðaáætlun í krabbameinsmálum fyrir árin 2025 til 2029 var samhljóða samþykkt á Alþingi í  fyrravor. Það var mikið gleðiefni hjá Krabbameinsfélaginu, sem hefur barist fyrir íslenskri krabbameinsáætlun í meira en áratug.  

Krabbameinsáætlun er meira en orð á blaði og samþykkt aðgerðaáætlun er í raun mjög metnaðarfull stefnuyfirlýsing stjórnvalda í baráttunni við krabbamein sem er ætlað að skapa framtíðarsýn þar sem:  

  • Árangur verði tryggður til framtíðar með markvissum forvörnum gegn helstu áhættuþáttum krabbameina, skimun og snemmgreiningu meina.  
  • Heildstæð krabbameinsþjónusta verði veitt samkvæmt stöðluðum greiningar- og meðferðarferlum.  
  • Aðgengi að krabbameinsþjónustu verði tryggt, óháð búsetu, uppruna og samfélagsstöðu.  
  • Lögð verði aukin áhersla á notkun gæða- og árangursmælikvarða við veitingu krabbameinsþjónustu.    

Álag í heilbrigðisþjónustunni er mikið og æ meira af völdum krabbameina. Krabbameinsfélagið spáir 12% fjölgun krabbameinstilvika á gildistíma áætlunarinnar en 63% fjölgun til ársins 2045.  

Það er mat félagsins að þau metnaðarfullu markmið sem koma fram í áætluninni muni tæplega raungerast án þess að til komi viðbótarfjármagn, bæði vegna starfsfólks og annars sem til þarf.  

Fólk sem tekst á við krabbamein er oft að takast á við stærstu áskoranir lífs síns og sjúklingar og aðstandendur vilja hafa aðgang að bestu meðferð sem veitt er með heilbrigðisþjónustu á heimsmælikvarða eins og segir í heilbrigðisstefnu.  

Krabbameinsfélagið skorar á stjórnvöld að standa við stóru orðin og róa að því öllum árum að framtíðarsýn í krabbameinsmálum verði að veruleika og veita til þess nauðsynlegu fjármagni.  

Til að tryggja að aðgerðaáætlun í krabbameinsmálum verði hrint af stað hefur félagið, á 75 ára afmæli þess, ákveðið að veita til hennar allt að 75 milljónum. Fjárveitingin byggi á sérstöku samkomulagi við heilbrigðisráðherra með tímasettum markmiðum, áherslum og reglulegri eftirfylgd með mælikvörðum.