Beint í efni
Málþing

Eru krabba­meins­for­varn­ir sveit­ar­stjórn­ar­mál?

Nú styttist í sveitarstjórnarkosningar. Krabbameinsfélagið hefur spurt framboð til sveitarstjórna um afstöðu þeirra til ýmissa þátta sem geta dregið úr krabbameinsáhættu.

Félagið hefur líka spurt fólk hér á landi um afstöðu þess til heilsueflandi aðgerða stjórnvalda. Við ræðum einnig um lögbundið hlutverk sveitarfélaga, fræðumst um heilsueflandi samfélög og nýjustu stefnu og strauma í krabbameinsforvörnum.

Þetta verður til umræðu á málþingi Krabbameinsfélagsins í húsnæði félagsins, laugardaginn 9. maí kl. 10:00, Skógarhlíð 8, 4. hæð og einnig í streymi í streymisveitu Krabbameinsfélagsins.

Dagskrá:

  • Lýðheilsa í ljósi lögbundins hlutverks sveitarfélaga – Helga María Pálsdóttir, sviðsstjóri hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga
  • Heilsueflandi samfélög – Gígja Gunnarsdóttir, verkefnastjóri hjá embætti landlæknis
  • Krabbameinsforvarnir – svo miklu meira en bara fræðsla – Sigrún Elva Einarsdóttir, sérfræðingur hjá Krabbameinsfélaginu
  • Samstarf í heimabyggð, öllum til góðs - Hrefna Eyþórsdóttir, formaður Krabbameinsfélags Austfjarða
  • Spánnýjar niðurstöður um afstöðu framboða í sveitarstjórnarkosningum til heilsueflandi lýðheilsuaðgerða – Ása Sigríður Þórisdóttir, kynningarstjóri Krabbameinsfélagsins

Fundarstjóri: Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins