10 leiðir til að takast á við bið og óvissu
Óvissa og bið eru óhjákvæmilegur hluti þess að greinast með krabbamein.
Biðin er oft fyrirferðarmikill hluti af ferlinu, hvort sem það er bið eftir greiningu, bið eftir læknatímum og rannsóknum, bið eftir næstu meðferð, eftir fréttum af árangri, eftir því að meðferð ljúki eða að ákvörðun sé tekin um næstu skref.
Óvissan sem fylgir getur reynt á þolrifin, líka í tilvikum aðstandenda, vina og vandamanna. Hún hefur mismikil áhrif á okkur, en getur aukið líkur á erfiðum tilfinningum á borð við kvíða, reiði og depurð. Óvissan sem fylgir krabbameinsgreiningu bætist líka ofan á áfallið sem flestir takast á við í kjölfar hennar og getur magnað upp andleg og líkamleg áhrif þess.
Yfirleitt finnur fólk fyrir létti þegar rannsóknarniðurstöður liggja fyrir og meðferðaráætlun hefur verið sett fram. Margir lýsa því þannig að fá aftur fast land undir fæturna, þótt eðlilegt sé að upplifa áfram sveiflur í andlegri líðan í ferlinu sem tekur við.
Meðfylgjandi eru nokkrar ráðleggingar sem við vonum að komi þér og þínum að gagni til að takast á við bið og óvissu og stuðli að betri líðan.
1) Aflaðu upplýsinga
Notaðu biðtímann til að undirbúa þig og læra meira um það sem er í vændum. Upplýsingaflóðið getur verið yfirþyrmandi, sérstaklega ef þú eða ástvinur þinn hefur nýlega fengið greiningu, og það er mikilvægt að afla þeirra frá áreiðanlegum heimildum.
Upplýsingum um þína tegund af krabbameini eða mögulegar aukaverkanir af meðferðum er best að afla frá því heilbrigðisstarfsfólki sem sinnir þér. Það getur verið gott að undirbúa spurningar fyrirfram og skrifa þær niður. Einnig er mælt með því að hafa einhvern sem þú treystir með þér og biðja þann aðila jafnvel um að punkta niður atriði sem koma fram og er mikilvægt að muna.
Ef þú ert aðstandandi getur verið gott að leita upplýsinga um þann stuðning sem stendur þér til boða og hvernig þú getur veitt þínum ástvini sem bestan stuðning.
Við hjá Krabbameinsfélaginu höfum tekið saman nokkur ráð um undirbúning fyrir viðtöl. Hjá okkur starfa einnig reynslumiklir fagaðilar sem veita ókeypis stuðning, ráðgjöf og fræðslu, bæði fyrir fólk með krabbamein og aðstandendur.
2) Þiggðu stuðning
Hvort sem þú ert með krabbamein eða aðstandandi getur verið mjög hjálplegt að þiggja stuðning þegar óvissa ríkir. Það getur þó reynst mörgum erfitt að biðja um aðstoð. Þér getur jafnvel liðið eins og aðrir skilji ekki fyllilega það sem þú ert að ganga í gegnum. Það getur verið gott að ræða hreinskilnislega við þá sem þú þarfnast aðstoðar frá og útskýra hvers þú þarfnast.
Hjá mörgum aðildarfélögum Krabbameinsfélagsins er líka boðið upp á jafningjastuðning, bæði fyrir fólk með krabbamein og aðstandendur. Stuðningshópar hittast reglulega og eru vettvangur til að deila reynslu og eiga samtal við aðra í svipuðum sporum.
3) Kynntu þér ókunnugar aðstæður
Það gæti fylgt krabbameinsgreiningunni að þú þurfir að verja styttri eða lengri tíma á sjúkrahúsi. Slík dvöl getur tekið á alla fjölskyldumeðlimi. Að kynnast þessu nýja umhverfi getur hjálpað þér og aðstandendum þínum að líða betur á meðan þið bíðið.
Á heimasíðu Landspítalans má nálgast mjög góðar upplýsingar um undirbúning fyrir dvöl á spítala.
4) Búðu til rútínu
Eitt af því sem getur hjálpað ef þér líður eins og þú sért ekki með fulla stjórn á þínu lífi er að leita markvisst eftir því sem þú hefur stjórn á. Þetta geta verið litlir hlutir eins og hverju þú ætlar að klæðast þennan daginn, hvernig þú ætlar að næra þig eða jafnvel með hvaða hugarfari þú ætlar að nálgast daginn.
Góð dagleg rútína gefur ákveðna stjórn og takt í lífið, hjálpar þér að komast í gegnum erfiða tíma og eykur líkur á að þú hugsir vel um þig. Mörgum þykir betra að hafa skipulag á sjónrænu formi, t.d. á dagatali. Það hefur líka reynst mörgum vel að gera hluti sem þau kunna vel, því það skapar öryggistilfinningu.
5) Leitaðu ráðgjafar hjá fagaðilum
Það er jafn mikilvægt að þú hlúir að andlegri og líkamlegri heilsu þinni, hvort sem þú ert með krabbamein, hefur einhvern tíma fengið krabbamein, eða ert aðstandandi.
Ýmsar leiðir eru færar til þess, en hjá Krabbameinsfélaginu starfa reynslumiklir hjúkrunarfræðingar, sálfræðingar og félagsráðgjafar sem geta aðstoðað þig við að vinna úr tilfinningum þínum og ná jafnvægi á ný. Þjónustan er ókeypis og stendur bæði fólki með krabbamein og aðstandendum þeirra til boða. Þú getur pantað tíma í síma 800 4040, eða með því að senda fyrirspurn á radgjof@krabb.is.
6) Stundaðu núvitund eða slökun
Rannsóknir benda til að núvitund og slökun geti haft margvíslegan, jákvæðan ávinning fyrir heilsu okkar og líðan. Með ástundun er hægt að bæta svefn og svefngæði, draga úr streitu, depurð og kvíða. Einnig hefur sýnt sig að regluleg iðkun dregur úr neikvæðum hugsanamynstrum og hefur góð áhrif á hjartaheilsu.
Krabbameinsfélagið býður upp á opna tíma í Jóga Nidra djúpslökun alla þriðjudaga og fimmtudaga.
Þú getur einnig hlustað á upptökur frá ráðgjöfum okkar með leiddri hugleiðslu og slökun.
7) Haltu dagbók
Óvissan sem oft fylgir biðinni getur tekið mikla orku og valdið kvíða. Með því að halda dagbók getur þú fengið útrás fyrir erfiðar tilfinningar og öðlast yfirsýn yfir það sem er að gerast í lífi þínu. Að skrifa niður hugsanir þínar getur þannig verið frábær leið til að fá skýrari sýn á andlega líðan og vinna úr reynslunni.
8) Hreyfðu þig
Öll hreyfing hefur jákvæð áhrif og ef þú hefur tök á getur hreyfing á borð við léttar gönguferðir eða teygjur hjálpað. Veldu þér hreyfingu sem hentar við núverandi aðstæður og ráðfærðu þig við heilbrigðisstarfsfólk ef þörf krefur.
9) Dreifðu huganum
Það er mikilvægt að leita leiða til að geta lagt áhyggjurnar á hilluna inn á milli. Tímabundið uppbrot getur verið góð leið til að dreifa huganum. Þú getur til dæmis lesið, horft á góða gamanmynd, spilað eða gert eitthvað skapandi, eins og að mála, prjóna eða skrifa.
10) Hlúðu að þér
Álagið sem fylgir biðinni getur tekið sinn toll af líkamlegri og andlegri heilsu, óháð því hvar þú ert í ferlinu. Það er mikilvægt að þú hugsir vel um þig, hvort sem þú ert með krabbamein eða ert aðstandandi einhvers með krabbamein. Það getur meðal annars falið í sér að fá næga hvíld, deila líðan þinni með einhverjum sem þú treystir eða að þiggja aðstoð þegar þú þarft á henni að halda.
Við mælum einnig með að þú kynnir þér bjargráð til að bæta líðan.
Byggir á grein frá kanadíska krabbameinsfélaginu. Þýtt og staðfært í júní 2026.
