Beint í efni
Mottumars2026-hero

Eng­inn einn í við­burða­rík­um Mottu­mars

Kærar þakkir til allra sem lögðu sitt af mörkum í Mottumars. Enginn á að þurfa að takast á við krabbamein einn síns liðs og það sýndum við og sönnuðum í sameiningu.  

Það eru forréttindi okkar hjá Krabbameinsfélaginu að upplifa frá fyrstu hendi velvildina sem Mottumars nýtur alls staðar í samfélaginu. Öflugur stuðningur almennings og fyrirtækja gerir okkur kleift að vinna að þeim markmiðum að færri fái krabbamein, fleiri læknist, lifi lengi og líði betur. 

Mottumarsauglýsingin 

Í Mottumarsauglýsingunni í ár var sleginn aðeins öðruvísi tónn en undanfarin ár, en í henni fylgjumst við með ungum manni fá þær fréttir að hann sé með krabbamein. Á augabragði fær hann innsýn inn í næstu daga, vikur og mánuði og þar stendur upp úr allur stuðningurinn sem fjölskylda, vinir, fagfólk og aðrir veita honum. Við sjáum að skrefin eru léttari í kjölfarið. 

Auglýsingin var frumsýnd í Vikunni með Gísla Marteini og hefur fengið mjög góðar viðtökur. 

Takk fyrir sokkana 

Mottumarssokkarnir í ár voru hannaðir af Stefáni Svan Aðalheiðarsyni í Stefánsbúð í samstarfi við grafísku hönnuðina Lindu Loeskow og Anton Kaldal Ágústsson. Þeir voru einstaklega litríkir og fallegir, en hönnunin byggði á orðunum „Takk fyrir“ sem fléttuðust saman í lifandi og áberandi mynstri og leturgerð. 

Þeir voru einnig framleiddir í viðhafnarútgáfu í þremur litum og hafa prýtt margan fótinn í mars. 

Einstök stemning í Mottumarshlaupinu 

Ríflega 300 þátttakendur létu slæma veðurspá ekki á sig fá og skráðu sig til þátttöku í Mottumarshlaupinu. Stemningin var einstök, en hlaupið var ræst frá Fagralundi í Kópavogi og 5 km hringur farinn á þeim hraða sem hver og einn kaus. Fyrstur í mark í karlaflokki var Egill Örn Gunnarsson á tímanum 16:37, sem er þriðji besti tími frá upphafi. Í kvennaflokki kom Hildur Aðalsteinsdóttir fyrst í mark á nýju brautarmeti, en hún hljóp á tímanum 18:47. 

Skeggjaður árangur í Skeggkeppni Mottumars 

Skeggkeppnin er fastur liður í Mottumars og að þessu sinni tóku hátt í 130 manns og 20 lið þátt. Efstu þrjú sætin voru leyst út með flottum vinningum, en Björgvin Ingi Ólafsson var hlutskarpastur í einstaklingskeppninni og Olís-motturnar sigruðu liðakeppnina. Samtals söfnuðust tæplega 5 milljónir króna frá almenningi og fyrirtækjum með áheitum. 

Hópmynd af sigurvegurum Skeggkeppni Mottumars 2026.

Höfum hátt um krabbamein – Tveir Lúðrar í höfn 

Mottumars og Bleika slaufan eru fyrst og fremst árvekniátök, þar sem við opnum umræðu um allt sem viðkemur krabbameinum. Í átökunum miðlum við fræðsluefni og reynslusögum fólks og setjum mikilvæg mál á dagskrá. 

Á íslensku auglýsingaverðlaununum Lúðrinum í ár voru auglýsingar beggja átaka frá árinu 2025 tilnefndar, annars vegar sem herferð ársins í flokki almannaheilla og sem besta kvikmyndaða almannaheillaauglýsingin. Svo fór að Mottumarsherferðin „Ertu að grínast með þinn lífsstíl“ hafði vinninginn í báðum flokkum. Við erum afar stolt af árangrinum og þakklát öllum sem lögðu hönd á plóg við gerð auglýsinganna.  

Mottusmars-hopmynd