Beint í efni
Mottumarshlaup

Ein­stök stemn­ing í Mottu­mars­hlaup­inu 2026

Ríflega 300 þátttakendur tóku þátt í Mottumarshlaupinu sem fram fór fimmtudaginn 19. mars og var stemningin einstök.

Mottumarshlaupið er eitt af stærstu 5 km götuhlaupunum hérlendis, sem við erum afar stolt af. Hlaupið, sem er FRÍ vottað, var nú haldið í þriðja sinn.

Hlaupið var ræst frá Fagralundi í Kópavogi og 5 km hringur farinn á þeim hraða sem hver og einn kaus.

Fyrstur í mark í karlaflokki var Egill Örn Gunnarsson á tímanum 16:37 sem er þriðji besti tíminn frá upphafi. Í kvennaflokki kom Hildur Aðalsteinsdóttir fyrst í mark á nýju brautarmeti, en hún hljóp á tímanum 18:47.

Mottumarshlaupið 2026

Regluleg hreyfing er mikilvægur þáttur í að draga úr líkum á krabbameinum og vonumst við til þess að hlaupið nýtist sem hvatning til áframhaldandi hreyfingar.

Myndirnar sem hér fylgja segja allt um þá stemmingu sem ríkti.

Krabbameinsfélagið þakkar öllum þeim fjölmörgu sem tóku þátt í hlaupinu og öllum þeim sem komu að skipulagningu og framkvæmd kærlega fyrir stuðninginn. Einnig þökkum við frábærum styrktaraðilum okkar fyrir góðan stuðning: CCEP, Bönunum ehf, Rent a party, Kópavogsbæ, Reykjavíkurborg og ÍR.

Inni á Facebooksíðu Mottumars er myndaalbúmið „Mottumarshlaupið 2026" þar sem hægt er að nálgast enn fleiri myndir úr hlaupinu.

Mottumarshlaupið 2026
Mottumarshlaupið 2026
Mottumarshlaupið 2026