Beint í efni
Mottusmars-hopmynd

Höf­um hátt um krabba­mein – Lúðrar í höfn

Herferðin „Ertu að grínast með þinn lífsstíl“ hlaut tvenn verðlaun á íslensku auglýsingaverðlaununum Lúðrinum, sem besta herferðin og besta kvikmyndaða auglýsingin í flokki almannaheilla.

Til að tryggja að mikilvægar upplýsingar nái eyrum og augum almennings í öllu því gríðarlega áreiti sem er í kringum okkur þarf að velja framsetningu efnis vel.  Ein beittustu verkfærin okkar hjá Krabbameinsfélaginu eru árvekniátökin Mottumars og Bleika slaufan. Enginn vafi leikur á því að þau hafa opnað umræðuna og sett mikilvæg mál á dagskrá þegar kemur að krabbameinum. Í átökunum miðlum við fjölbreyttu fræðsluefni og einnig hafa  fjölmargir með reynslu af krabbameini sagt sínar sögur. Það er ómetanlegur liður í átökunum og hefur mjög mikla þýðingu fyrir fjölda fólks.

Fjórar tilnefningar fyrir Mottumars og Bleiku slaufuna

„Markmið Krabbameinsfélagsins eru að færri fái krabbamein, fleiri læknist, lifi lengi og líði betur, en til að þau náist þurfum við auðvitað að ná til fólks,“ segir Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins. „Á þeim 11 árum sem Krabbameinsfélagið hefur staðið fyrir Mottumars hefur umræða um einkenni og lífsstíl hjá körlum galopnast og gjörbreyst áhrif Bleiku slaufunnar eru einnig ótvíræð“.

„Staðreyndin er sú að margar tegundir krabbameina eiga þekkta áhættuþætti og í Mottumars í fyrra vorum við að segja frá nokkrum þeirra, með sterkri myndrænni frásögn úr lífi söguhetjunnar. Það er hins vegar auðvitað ekki öll sagan,“ segir Halla. „Þó við getum gert margt til að draga úr áhættu sem einstaklingar, er afar brýnt að stjórnvöld nýti líka sinn mátt til að efla lýðheilsu, meðal annars með því að auðvelda fólki að taka heilsusamlegar ákvarðanir í hversdeginum. Lungnakrabbamein og krabbamein í ristli og endaþarmi eru meðal fjögurra algengustu krabbameina hjá þeim 1.058 karlmönnum sem fá krabbamein árlega, en þau hafa bæði þekkta áhættuþætti sem tengjast lífsstíl.“

Það var afar ánægjulegt að bæði Mottumars og Bleika slaufan voru tilnefnd til auglýsingaverðlaunanna Lúðursins í ár, Tilnefningarnar voru fjórar en átökin voru hvort um sig tilnefnd sem herferð ársins í flokki almannaheilla og sem besta kvikmyndaða almannaheillaauglýsingin. Sigurvegarinn er bara einn og svo fór að Mottumars hafði vinninginn í báðum flokkum.

Ertu að grínast með þinn lífsstíl - Verðlaunaauglýsing Mottumars 2025

Kraftur með silfurverðlaun

Þá var einnig sérstaklega ánægjulegt að Kraftur, eitt af aðildarfélögum Krabbameinsfélagsins, hlaut silfurverðlaun fyrir kvikmyndaða auglýsingu sem var liður í eftirminnilegri herferð félagsins undir yfirskriftinni Ég á lítinn skrítinn skugga. „Það má eiginlega segja að sannkölluð lúðrasveit hafi farið þarna fram í nafni baráttunnar gegn krabbameinum,“ segir Halla.

„Þetta er mikil viðurkenning fyrir félagið og í fyrsta sinn sem við hljótum slíka viðurkenningu fyrir markaðsstarf okkar,“ segir Sólveig Ása Tryggvadóttir, framkvæmdastjóri Krafts. „Við þökkum öllum sem komu að gerð auglýsingarinnar, PIPAR/TBWA auglýsingastofu og leikstjóranum, Allan Sigurðssyni hjá Atlavík, en fyrst og fremst viljum við þakka þeim sem hafa lánað okkur sögurnar sínar. Hugrekki þeirra er okkur afar dýrmætt.“

Margir sem leggja hönd á plóg í Mottumars og Bleiku slaufunni

Mottumars og Bleika slaufan njóta ávallt mikillar velvildar og auðsótt hefur verið að fá fólk til liðs við okkur. „Við erum afar hrærð yfir því hversu margir leggja hönd á plóg og stolt af því að uppskera þennan glæsilega árangur,“ segir Árni Reynir Alfredsson, forstöðumaður markaðsmála og fjáröflunar hjá Krabbameinsfélaginu. „Það eru mjög margir sem eiga þakkir skilið, en ekki síst Thelma Björk Jónsdóttir hjá Thelma design og Berglind Häsler í Havarí. Ómetanleg framlög þeirra ljáðu báðum herferðum mikið hjarta, sem margir tengdu við.“

Að auki viljum við þakka auglýsingastofunni Tvist, framleiðslufyrirtækinu Republik Film Productions, leikstjórunum Magnúsi Leifssyni, Unu Lorenzen og Baltasar Breka, ljósmyndurunum Svenna Speight og Írisi Dögg Einarsdóttur, Jóa B í Audioland fyrir hljóðvinnu og að endingu Emilíönu Torrini fyrir leyfi til að nota lagið „Sunny Road“ í auglýsingu Bleiku slaufunnar.  Við þökkum einnig leikurum, öllum sem sátu fyrir og öllum sem komu að gerð átakanna með einum eða öðrum hætti. Síðast en ekki síst viljum við þakka öllum þeim sem stigu fram og veittu okkur dýrmæta innsýn inn í reynsluheim fólks með krabbamein og aðstandenda. Hjartans þakkir fyrir ykkar framlag.

Höldum lúðrablæstrinum áfram og höfum hátt um krabbamein, því lífið liggur við.