Beint í efni
Hópmynd af sigurvegurum Skeggkeppni Mottumars 2026.

Skegg­keppni Mottu­mars 2026 – úr­slit og mynd­ir frá verð­launa­af­hend­ingu

Björgvin Ingi Ólafsson var hlutskarpastur í einstaklingskeppninni og Olís-motturnar sigruðu liðakeppnina.

Þær voru ræktarlegar motturnar sem kepptu í Skeggkeppni Mottumars í ár. Skeggkeppnin er fastur liður í Mottumars, árlegu árvekni- og fjáröflunarátaki Krabbameinsfélagsins, en þar geta einstaklingar og lið safnað safnað skeggi og áheitum til styrktar Krabbameinsfélagsins og lagt sitt af mörkum til að færri fái krabbamein, fleiri læknist, lifi lengi og líði betur.

Hátt í 130 manns og 20 lið tóku þátt í Skeggkeppninni í ár og söfnuðust tæplega 5 milljónir króna.

Myndband frá verðlaunaafhendingunni

Það ríkti mikil stemming á verðlaunaafhendingunni sem var að þessu sinni haldin á rakarastofunni Herramenn þann 26. mars síðastliðinn. Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins, hélt stutt erindi þar sem hún fór yfir inntak átaksins og undirstrikaði mikilvægi stuðnings. Að því loknu hélt Þorri Snæbjörnsson, sálfræðingur og teymisstjóri stuðnings og ráðgjafar hjá Krabbameinsfélaginu, stutt erindi um þá ókeypis þjónustu sem félagið býður öllum sem fengið hafa krabbamein og aðstandendum þeirra.

Efstu þrjú sætin í hvorum flokki fyrir sig voru síðan leyst út með flottum vinningum frá samstarfsaðilum okkar hjá Elko, Laugarás Lagoon, Löður bílaþvotti, Eldingu hvalaskoðun, Center Hotels, Oche Reykjavík, Flyover Iceland og Hvammsvík.

Sigurvegarar í einstaklingskeppninni

Í einstaklingskeppninni varð Björgvin Ingi Ólafsson hlutskarpastur, Guðmundur Guðmundsson hreppti annað sætið og Ágúst Kristján Steinarsson það þriðja.

Sigurvegarar í einstaklingskeppni Mottumars 2026

Sigurvegarar í liðakeppninni

Í liðakeppninni voru það Olís-motturnar sem höfðu vinninginn, Torcargo Snjallmottur urðu í öðru sæti og í því þriðja varð B-vakt Flugvallarþjónustu KEF.

Annað sæti í liðakeppni Skeggkeppni Mottumars 2026
Skeggkeppni Mottumars 2026
Sigurvegarar í liðakeppni Skeggkeppni Mottumars 2026
Þriðja sæti í liðakeppni Skeggkeppni Mottumars 2026

Við þökkum öllum þeim sem tóku þátt í Skeggkeppninni og þeim sem styrktu kærlega fyrir stuðninginn. Með ykkar hjálp veitum við ókeypis ráðgjöf og stuðning til fólks með krabbamein og aðstandenda þeirra, styrki til íslenskra rannsókna á krabbameinum og ýmis konar fræðslu og forvarnir. Án ykkar ómetanlega stuðnings væri ekkert af þessu mögulegt, því hann er grundvöllur allrar starfsemi félagsins.

Skeggkeppni Mottumars 2026
Skeggkeppni Mottumars 2026