Gefðu þér tíma fyrir þig
Þér gæti fundist að vegna veikinda ástvinar þíns eigi þínar þarfir að mæta afgangi eða þá að álagið sé slíkt að þér gangi illa að finna tíma til aflögu fyrir þig.
Þú gætir líka fundið til sektarkenndar yfir því að geta notið þess sem ástvinur þinn fær ekki notið um þessar mundir. Flestir lýsa þessum sömu tilfinningum.
Gefðu þér áfram tíma fyrir þín áhugamál og það sem nærir þig. Það gefur þér orku til að takast á við aðstæður og er öllum til góða. Gerðu daglega eitthvað notalegt fyrir sjálfan þig – jafnvel nokkrar mínútur á dag geta hjálpað. Hættu ekki að stunda áhugamál þín heldur reyndu frekar að minnka tímann sem fer í þau.
Reyndu einnig að taka frá tíma til að hvílast, hreyfa þig, vinna í garðinum, stunda áhugamál, horfa á bíómynd, eða hvað annað sem þú finnur að hjálpar þér að slaka á. Þú gætir fundið fyrir erfiðleikum með að slaka á, jafnvel þótt þú hafir tíma til þess. Fólk í þeim sporum hefur tjáð að þá sé gott að gera mjúkar æfingar, teygjur, öndunaræfingar eða bara að sitja kyrr í smástund.
Ef ástvinur þinn getur ekki verið einn heima vegna veikindanna gæti hjálpað að sækja um öryggishnapp eða að biðja um hjálp frá fjölskyldu og vinum við að vera hjá viðkomandi á meðan þú ert frá. Gott er þá að slík viðvera sé skipulögð á vissum dögum og tímum.
Að gefa þér tíma til að endurnæra líkama, huga og sál, hjálpar bæði þér og ástvini þínum í þeim aðstæðum sem þið standið frammi fyrir. Það gæti reynst þér gagnlegt að íhuga hvað gæti helst hjálpað þér að finna vellíðan og slaka á. Aðstandendur hafa tjáð að jafnvel nokkrar mínútur á dag án utanaðkomandi truflunar geti hjálpað til við að safna kröftum og þrauka áfram.
Nokkur hollráð:
- Gerðu daglega eitthvað notalegt fyrir sjálfan þig – jafnvel nokkrar mínútur á dag geta hjálpað.
- Hættu ekki að stunda áhugamál þín heldur reyndu frekar að minnka tímann sem fer í þau ef þess þarf.
- Hugsaðu um hvernig aðrir geta mögulega komið þér til aðstoðar.
- Leitaðu einfaldra leiða til að vera í sambandi við vini þína.
Ráðgjöf og stuðningur þér að kostnaðarlausu
Þjónusta félagsráðgjafa, hjúkrunarfræðinga og sálfræðinga Krabbameinsfélagsins er í boði í greiningarferli, meðferð eða að lokinni meðferð, á íslensku, ensku og pólsku. Þjónustan er líka fyrir aðstandendur.