Málþing: Alþjóðadagur krabbameinsrannsókna 2026
Alþjóðadagur krabbameinsrannsókna gefur einstakt tækifæri til að ræða krabbameinsrannsóknir og fræðast um þær. Í tilefni dagsins býður Krabbameinsfélagið til málþings sem fer fram fimmtudaginn 24. september í húsi félagsins, Skógarhlíð 8, og í streymi.
Í ár tileinkum við daginn Vísindasjóði Krabbameinsfélagsins og þýðingu krabbameinsrannsókna fyrir fólk með krabbamein.
Vísindasjóðurinn stendur nú á þeim tímamótum að úr honum hefur verið úthlutað 10 sinnum, alls 774 milljónum króna.
