Beint í efni
Alþjóðadagur krabbameinsrannsókna 2026

Mál­þing: Al­þjóða­dag­ur krabba­meins­rann­sókna 2026

Alþjóðadagur krabbameinsrannsókna gefur einstakt tækifæri til að ræða krabba­meinsrannsóknir og fræðast um þær.

Í ár tileinkum við daginn Vísindasjóði Krabba­meinsfélagsins og þýðingu krabbameinsrannsókna fyrir fólk með krabbamein.

Vísindasjóðurinn stendur nú á þeim tímamótum að úr honum hefur verið úthlutað 10 sinnum, alls 774 milljónum króna.

Dagskrá

Setning málþings

Vísindasjóður Krabbameinsfélagsins í 10 ár – mat á áhrifum í íslensku samfélagi
Katrín Frímannsdóttir

Waldenströms-sjúkdómur - Stefnumót vísindamanns og manns sem lifir með sjúkdóminn
Erna Magnúsdóttir og Gunnar Ármannsson

Rödd þeirra sem reynsluna hafa í þróun þjónustu – hagnýting „PROMs“ úr Lífsgæðarannsókn við mótun þjónustu vegna langvinnra aukaverkana
Sigríður Gunnarsdóttir og Vigdís Eva Guðmundsdóttir

Vísindasjóður Krabbameinsfélagsins - árangur, staða og framtíð
Stefán Eiríksson, Katrín Frímannsdóttir og Magnús Karl Magnússon

Vísindin vísa veginn fram á við. Við hvetjum alla sem hafa áhuga á framförum gegn krabbameinum til að mæta og taka þátt í deginum.

Þátttaka er gjaldfrjáls og öllum opin en skráning er nauðsynleg. Sérstök skráning er líka fyrir þá aðila sem óska eftir að kynna veggspjald.