Stór tímamót - opnað fyrir umsóknir í Vísindasjóð Krabbameinsfélagsins í tíunda sinn
Við erum afar stolt af því að geta auglýst eftir umsóknum í Vísindasjóð Krabbameinsfélagsins í tíunda sinn í ár. Einnig er auglýst eftir umsóknum um styrki úr Rynkeby-sjóði Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna. Umsóknarfrestur er til og með 2. mars.
Markmið Vísindasjóðs Krabbameinsfélagsins er að efla íslenskar rannsóknir á orsökum krabbameina, forvörnum, meðferð og lífsgæðum sjúklinga.
Frá árinu 2017 hafa 63 rannsóknarverkefni af fjölbreyttum toga fengið 106 styrki úr sjóðnum, alls 655,5 milljónir króna. Vísindafólk hefur lýst því að stofnun Vísindasjóðs Krabbameinsfélagsins hafi verið bylting í krabbameinsrannsóknum hér á landi.
Á þessu ári er stefnt að því að 30% úthlutunar fari til klínískra rannsókna. Sérstaklega er hvatt til umsókna vegna rannsókna á krabbameinum hjá börnum til samræmis við markmið sjóðs Kristínar Björnsdóttur, sem var hluti af stofnfé Vísindasjóðsins.
Hámarksupphæð styrks er 12 milljónir króna.
- Sama verkefni getur fengið styrk að hámarki í þrjú ár.
- Umsóknarfrestur rennur út á miðnætti mánudaginn 2. mars
- Umsóknir skal senda rafrænt á visindasjodur@krabb.is.
- Umsóknareyðublöð, úthlutunarreglur og aðrar upplýsingar er að finna hér.
Rynkeby-sjóður Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna (SKB)
Líkt og þrjú síðastliðin ár auglýsum við eftir umsóknum um styrki úr Rynkeby-sjóði SKB til krabbameinsrannsókna sem snúa að börnum, samhliða úthlutun úr Vísindasjóði Krabbameinsfélagsins. Úr sjóðnum hafa verið veittir 8 styrkir til 5 rannsókna sem nema 61,7 milljónum króna, frá árinu 2023.
Farið verður með þær umsóknir á sama hátt og aðrar umsóknir í Vísindasjóð Krabbameinsfélagsins, eftir því sem við á, þannig að faglegar kröfur Vísindasjóðs Krabbameinsfélagsins gilda.
- Umsóknarfrestur rennur út á miðnætti mánudaginn 2. mars
- Umsóknir skal senda rafrænt á visindasjodur@krabb.is.
- Umsóknareyðublöð, úthlutunarreglur og aðrar upplýsingar er að finna hér.

63 rannsóknarverkefni af fjölbreyttum toga hafa hlotið 106 styrki úr sjóðnum, alls 655,5 milljónir króna
Kynntu þér þau fjölbreyttu rannsóknarverkefni sem hlotið hafa styrk úr Vísindasjóði Krabbameinsfélagsins frá árinu 2017.
Hvaðan kemur fjármagn Vísindasjóðsins?
Stofnfé Vísindasjóðsins kom frá Krabbameinsfélagi Íslands og aðildarfélögum þess, og úr minningarsjóðum, erfðagjöfum Ingibjargar Guðjónsdóttur Johnson og Kristínu Björnsdóttur til Krabbameinsfélagsins. Eftir stofnun sjóðsins hefur Krabbameinsfélagið verið megin styrktaraðili sjóðsins með 484 milljóna króna framlagi til viðbótar við stofnframlag, þar af var styrkur félagsins til sjóðsins í fyrra 155 milljónir króna. Sjóðnum hafa að auki borist myndarlegir styrkir frá almenningi og fyrirtækjum í gegnum árin.
