Beint í efni
  1. Heim
  2. Starfið
  3. Fréttir og miðlun
  4. Opnað hefur verið fyrir umsóknir úr Framfarasjóði Krabbameinsfélagsins
Framfarasjóður 2026

Opn­að hef­ur ver­ið fyr­ir um­sókn­ir úr Fram­fara­sjóði Krabba­meins­fé­lags­ins

Frestur til að sækja um rennur út á miðnætti 20. desember 2026.

Framfarasjóði Krabbameinsfélagsins er ætlað að styrkja verkefni sem bæta þjónustu við fólk með krabbamein og aðstandendur þess og efla forvarnir. Stofnfé sjóðsins eru 75 milljónir. Sérstök áhersla verður lögð á verkefni sem fela í sér framfarir, nýsköpun, þróun eða umbætur sem geta skilað varanlegum ávinningi fyrir einstaklinga, heilbrigðiskerfið eða samfélagið í heild.  

Nú er auglýst eftir umsóknum fyrir fyrstu úthlutun úr sjóðnum, sem verður í byrjun árs 2027. Umsóknarfrestur rennur út á miðnætti 20. desember nk. og eru umsækjendur hvattir til að kynna sér vel skipulagsskrá og úthlutunarreglur sjóðsins. 

Hægt er að sækja um á síðu sjóðsins, þar sem einnig má nálgast nánari upplýsingar. 

Allar umsóknir fá rýni fagráðs sem leggur mat á gæði umsókna og er stjórn sjóðsins til ráðgjafar við styrkveitingar samkvæmt úthlutunarreglum. 

Ætlað að styðja við nýsköpun og framfarir 

Krabbameinsfélagið hefur í gegnum tíðina átt frumkvæði að mörgum mikilvægum verkefnum sem þykja í dag vera sjálfsagður hluti af krabbameinsþjónustu. Góðar hugmyndir að slíkum framförum verða til víða í samfélaginu og er nýjum Framfarasjóði ætlað að vera sérstök hvatning til nýsköpunar.  

Framfarasjóður Krabbameinsfélagsins var settur á laggirnar í tilefni af 75 ára afmæli félagsins, og tekur stofnfé sjóðsins mið af því. Sjóðurinn er sambærilegur Vísindasjóði Krabbameinsfélagsins sem leggur áherslu á að styrkja krabbameinsrannsóknir, og hefur frá árinu 2017 úthlutað 774 milljónum króna til 67 rannsókna.