Framfarasjóður

Framfarasjóður
Hlutverk sjóðsins er að styrkja ný verkefni sem stuðla að bættri þjónustu við fólk með krabbamein og aðstandendur þess, með og eftir krabbamein, og efla forvarnir gegn krabbameinum.
Fagráð
Allar umsóknir um styrki fara í gegnum fagráð sjóðsins sem fer yfir þær og veitir stjórn sjóðsins umsögn um þær.

Framfarasjóður
Framfarasjóðurinn mun leggja sérstaka áherslu á verkefni sem fela í sér framfarir, nýsköpun og þróun eða umbætur sem geta skilað varanlegum ávinningi fyrir einstaklinga, heilbrigðiskerfið eða samfélagið í heild.

Tryggur bakhjarl í 75 ár
Krabbamein snertir okkur öll. Krabbameinsfélagið er tryggur bakhjarl um allt land þegar lífið tekur óvænta stefnu. Við veitum stuðning og ráðgjöf, vinnum að forvörnum, stundum rannsóknir, styrkjum vísindastarf og beitum okkur fyrir framförum.
