Beint í efni
  1. Heim
  2. Framfarasjóður
  3. Um Framfarasjóð Krabbameinsfélagsins

Um Fram­fara­sjóð Krabba­meins­fé­lags­ins

Stjórn Krabbameinsfélags Íslands samþykkti á fundi sínum í desember 2025 að stofna sérstakan sjóð, Framfarasjóð, til að hvetja til nýsköpunar og þróunar nýrra úrræða í þjónustu við fólk með krabbamein og aðstandendur þess, svo og ný forvarnarverkefni.  

Í lögum Krabbameinsfélags Íslands segir að tilgangur félagsins sé meðal annars að styðja framfarir í meðferð krabbameina og umönnun krabbameinssjúklinga. Góðar hugmyndir að slíkum framförum og nýsköpun geta kviknað víðar í samfélaginu en innan Krabbameinsfélagsins og sjóðnum er ætlað að vera sérstök hvatning til aðila utan félagsins til nýsköpunar í málaflokknum.  

Ákveðið var að stofnfé sjóðsins yrði 75 milljónir.  

Undirbúningur að stofnun sjóðsins hófst strax. Stofnféð var lagt inn á sérstakan vörslureikning, þar til sjóðurinn hefði fengið kennitölu og bankareikning og gengið frá skipan stjórnar sjóðsins og fagráðs. Sýslumaður Vestfjarða staðfesti skipulagsskrá sjóðsins 10. ágúst 2026.  

Sjóðurinn mun leggja sérstaka áherslu á verkefni sem fela í sér framfarir, nýsköpun og þróun eða umbætur sem geta skilað varanlegum ávinningi fyrir einstaklinga, heilbrigðiskerfið eða samfélagið í heild.

Fjármögnun Framfarasjóðs 

Hægt er að styrkja sjóðinn beint: 

Framfarasjóður Krabbameinsfélags Íslands 
Kennitala sjóðsins:  570826-2040 

Reikningsnúmer: 0357-22-010713 

Skógarhlíð 8, 105 Reykjavík 

Fyrirspurnum má koma á framfæri á netfangið framfarasjodur@krabb.is. 

Var efnið hjálplegt?

Gott að vita, takk!

Hvað þarf að laga?