Beint í efni
  1. Heim
  2. Framfarasjóður
  3. Stjórn Framfarasjóðs

Stjórn Fram­fara­sjóðs

Stjórn Framfarasjóðsins Krabbameinsfélagsins skipa þrír einstaklingar tilnefndir til þriggja ára í senn af stjórn Krabbameinsfélagsins og tveir til vara.

Stjórn sjóðsins mótar stefnu hans og setur úthlutunarreglur þar sem fjallað er um umsóknir, matsferli, kynningar, skil á niðurstöðum og styrki. Stjórnin ber ábyrgð á því að úthlutun styrkja sé í samræmi við skipulagsskrá og ber ábyrgð á ávöxtun sjóðsfjár.

Stjórnin auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðum að minnsta kosti einu sinni á ári og annast styrkveitingar úr sjóðnum að fenginni umsögn fimm manna fagráðs.

Eftirfarandi aðilar skipa stjórn Framfarasjóðs Krabbameinsfélagsins:

  • Sigríður Mogensen, sviðsstjóri Samtaka iðnaðarins, er formaður stjórnar sjóðsins.
  • Rögnvaldur Sæmundsson, aðstoðarrektor Háskóla Íslands, meðstjórnandi.
  • Vala Smáradóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélags höfuðborgarsvæðisins, meðstjórnandi.

Varamenn eru:

  • Arnar Árnason, endurskoðandi.
  • Hrefna Eyþórsdóttir, formaður Krabbameinsfélags Austfjarða.

Var efnið hjálplegt?

Gott að vita, takk!

Hvað þarf að laga?