Beint í efni
Merki evrópsku krabbameinsvikunnar 2026

Evr­ópska krabba­meinsvik­an - við tök­um þátt

Í evrópsku krabbameinsvikunni vekjum við athygli á ýmsu sem skiptir máli í því marghliða verkefni sem krabbamein er. Krabbameinsfélagið hefur útbúið efni fyrir hvert þema vikunnar.

Nú stendur yfir evrópska krabbameinsvikan (e. European Week Against Cancer), en henni lýkur með Alþjóðlega tóbakslausa deginum þann 31. maí. Þá vekja evrópsk krabbameinsfélög athygli á öllu sem viðkemur baráttunni gegn krabbameinum, frá forvörnum og krabbameinsrannsóknum til málefna lifenda. Hver dagur vikunnar hefur sitt eigið þema og saman endurspegla þau þær margvíslegu leiðir sem við búum yfir til að draga úr þeirri samfélagslegu byrði sem krabbamein er.

Forvarnir

Vissir þú að það er hægt að draga verulega úr líkum á um 40% krabbameinstilfella með lífstílsbreytingum?

Birgitta Lind Vilhjálmsdóttir, sérfræðingur í fræðslu og forvörnum hjá Krabbameinsfélaginu, segir frá helstu áhættuþáttum.