Ráðgjöf
Ráðgjafar Krabbameinsfélagsins veita ýmis konar fræðslu, stuðning og ráðgjöf við fólk sem hefur greinst með krabbamein, aðstandendur þess og syrgjendur. Þjónustan er öllum opin, endurgjaldslaust.
Þjónustan er veitt í Skógarhlíð 8 í Reykjavík og Glerárgötu 24, Akureyri.
Hjá félaginu starfar þverfaglegt teymi ráðgjafa, sálfræðinga, hjúkrunarfræðinga og félagsráðgjafa, sem veita sjúklingum, aðstandendum og syrgjendum mikilvægan stuðning í einu af stærsta verkefni lífs síns. Þjónustan er í boði á íslensku, ensku, pólsku og þýsku.
Lögð er áherslan á sérhæfða, faglega aðstoð við úrvinnslu áfalla, streitustjórnun, þjálfun í gagnlegum og gagnreyndum bjargráðum við kvíða, áhyggjum og aukaverkunum á borð við þreytu, verki og svefnvandamál og ráðgjöf vegna samskipta innan fjölskyldna, breyttrar líkamsmyndar og breytts lífs í kjölfar krabbameins auk hagnýttra upplýsinga um félagsleg úrræði og réttindi í veikindum, svo eitthvað sé nefnt.
- Hægt er að fá símaráðgjöf í síma 800 4040 mánudaga til fimmtudaga kl. 9-16 og á föstudögum kl. 9-14.
- Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á radgjof@krabb.is .
- Kíktu við í Skógarhlíð 8 (Reykjavík) eða Glerárgötu 24 (Akureyri) og fáðu nánari upplýsingar um starfsemina.
- Þá eru fjarviðtöl í boði sem og ráðgjöf hjá nokkrum þjónustuskrifstofum á landsbyggðinni.
- Á Akureyri eru ráðgjafar Krabbameinsfélagsins staðsettir á skrifstofu Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis (KAON), Glerárgötu 24, sími 461 1470. Hægt er að senda fyrirspurnir með tölvupósti á netfangið kaon@krabb.is.
Notendaráð Krabbameinsfélagsins
Eitt af hlutverkum Krabbameinsfélagsins er að gæta hagsmuna þeirra sem veikjast af krabbameinum og aðstandenda þeirra. Til að geta sinnt því hlutverki sem best þarf félagið að vita hvað skiptir þau mestu máli og geta fengið þeirra sýn á ýmis mál.









