Mottumars - herferð (tbd)

Mottumars
Mottumars
Áakið er hafið!
Ertu að grínast með þinn lífsstíl?
Það sem virkar fyndið í fyrstu getur haft sorglegar afleiðingar
Skeggkeppni Mottumars 2026 - skráning þátttakenda er hafin!
Skeggkeppnin skemmtilega er fastur liður í Mottumars, árlegu árvekni og fjáröflunarátaki Krabbameinsfélagsin.


Gagnlegar upplýsingar
Vinir Mottumars 2025 - verður þú með í ár?






























Fræðsla um lífsstíl sem dregur úr líkum á krabbameinum
Að minnsta kosti eitt af hverjum þremur krabbameinstilvikum hafa tengsl við lífsvenjur fólks. Þó að þú getir ekki tryggt þig gegn því að fá krabbamein getur þú dregið úr líkunum með heilsusamlegum lífsstíl. Kynntu þér hvernig þú getur tekið góðar ákvarðanir fyrir þig og þína.

Karlaklúbburinn
Við karlar erum stundum heldur tregir að leita upplýsinga eða aðstoðar varðandi andlega eða líkamlega heilsu. Saman ætlum við að breyta þessu. Sem félagi þiggur þú tölvupósta nokkrum sinnum á ári með fróðleik og hvatningu. Þannig ertu liðsmaður í baráttunni gegn krabbameinum.

Ráðgjöf og stuðningur þér að kostnaðarlausu
Þjónusta félagsráðgjafa, hjúkrunarfræðinga og sálfræðinga Krabbameinsfélagsins er í boði í greiningarferli, meðferð eða að lokinni meðferð, á íslensku, ensku, pólsku og þýsku. Þjónustan er líka fyrir aðstandendur.






