Ekki hægt að ná utan um allt sitt einn
Steinþór Kristjánsson er sálfræðingur hjá Krabbameinsfélaginu. Hann segir mikilvægt að leyfa sér líka að upplifa erfiðu tilfinningarnar sem fylgja krabbameini og hvetur karla til að sýna sjálfum sér skilning og sveigjanleika.
„Við getum líkt þessu við jeppaferð upp á hálendið,“ segir Steinþór. „Við þurfum að vera með góð dekk og bíl sem ræður við verkefnið. En ef það er ekkert bensín á tankinum þá komumst við ekki langt.“ Hann segir bjargráðin fyrst og fremst að vera vakandi fyrir okkar eigin líðan og fylgjast með því ef hún er að versna. Ekki bara bregðast við þegar eitthvað erfitt gerist heldur reyna líka að undirbúa okkur fyrir fram og vera búin að ákveða hvað við ætlum að gera í því.
„Karlar sækja síður í stuðning, þeir sækja síður í aðstoð.“ Að sögn Steinþórs getur krabbamein kollvarpað okkar hlutverkum, til dæmis sem sterki maðurinn á heimilinu sem lyftir þungu hlutunum. „Þegar að styrkurinn kannski glatast þá truflast þetta hlutverk svolítið og maður spyr sig: Hver er ég núna?“ Hann undirstrikar að karlar þurfa ekki að finna út úr þessum tilfinningum einir. „Maður getur fengið aðstoð með það líka bara hvernig maður skilur þessa upplifun.“
Steinþór undirstrikar mikilvægi þess að við leyfum okkur líka að upplifa erfiðu tilfinningarnar sem fylgja krabbameini. „Það getur verið depurð yfir óvissunni, eða að við höfum ekki alveg stjórn á aðstæðum. Það er auðvitað sorg yfir greiningunni. Við missum kannski eitthvað eða einhver tækifæri, það er eitthvað í framtíðinni sem breytist eða glatast. Og svo auðvitað líka bara kvíði yfir hættunni sem greiningunni fylgir, það er alltaf raunverulegt líka.“ Hann hvetur karla til að sýna sér skilning og sveigjanleika.
Ekki hægt að ná utan um allt sitt einn
„Að greinast með krabbamein eða að vera aðstandandi einhvers sem hefur greinst með krabbamein er bara erfið staða og krefjandi. Stundum er áfallið mikið fyrst, en stundum er líka álagið mjög mikið til lengri tíma,“ segir Steinþór. „Það er ekki hægt að ná utan um allt sitt einn, við erum einfaldlega ekki gerð til þess. Það á við um mig og líka aðra að við þurfum alltaf á tímabilum aðstoð. Þetta er krefjandi líkamlega og andlega og árangurinn í heildina er bara betri ef við leitum okkur aðstoðar.“
Ráðgjöf og stuðningur þér að kostnaðarlausu
Þjónusta félagsráðgjafa, hjúkrunarfræðinga og sálfræðinga Krabbameinsfélagsins er í boði í greiningarferli, meðferð eða að lokinni meðferð, á íslensku, ensku, pólsku og þýsku. Þjónustan er líka fyrir aðstandendur.
