Beint í efni
Forsíðumynd fyrir reynslusögu

Hugs­aði sjálf­ur að ég þyrfti eng­an, en það er ekki rétt

Krzysztof Skurski greindist með ristilkrabbamein árið 2023 með meinvörpum í eitlum. Hann upplifði að hann fengi lífsviljann aftur eftir að hann sótti sér stuðning og vill nú reyna að hjálpa öðrum í sömu sporum. 

„Ég átti mjög erfitt með þetta og einangraði mig,“ segir Krzysztof. „Mér fannst eins og enginn þyrfti á mér að halda.“ Konan hans benti honum á að hjá Krabbameinsfélaginu gæti hann fengið stuðning á pólsku, móðurmáli sínu, og hvatti hann til að prófa. „Ég hafði efasemdir, en konan mín stóð fast á sínu, bókaði tíma og við fórum, þótt ég væri tregur til þess.“ 

Þau hjónin hittu Ninu Słowińska, pólskumælandi félagsráðgjafa Krabbameinsfélagsins, í tvö skipti áður en Krzysztof lét sannfærast. „Hún er mjög indæl kona sem hjálpaði mér mjög mikið,“ segir hann. „Eftir langt samtal sem við áttum leið mér betur því að ég hafði einhvern sem ég gat leitað til, talað við og fengið stuðning og þá fór ég sjálfur að vilja koma.“ Nina aðstoðaði þau hjón einnig við útfyllingu skjala og önnur réttindamál. „Það er rosalega mikið sem þarf að gera og ég réð ekki við það sjálfur.“ 

Mikla hjálp að fá 

Jafningjastuðningur reyndist Krzysztof einnig mjög vel. „Það er allt annað að tala við fólk með sömu reynslu,“ segir hann. „Ég fékk lífsviljann aftur og nú er ég að reyna að hjálpa öðrum. Við hittumst einu sinni eða tvisvar í mánuði, fólk sem hefur verið í sömu stöðu og það er stórkostlegt. Við tölum okkar tungumál, fáum mikla hjálp og vitum að ef vandamál kemur upp þá getum við hringt eða bókað viðtal.“ Hann þakkar Ninu jafnframt kærlega fyrir að halda utan um hópinn. „Við eigum henni margt að þakka.“ 

Krzysztof undirstrikar mikilvægi þess að fólk leiti sér aðstoðar, því hjálpin sé auðsótt, þótt það geti verið stressandi að stíga fyrsta skrefið. „Ég vil hvetja alla til að leita sér aðstoðar, því ég hugsaði sjálfur að ég þyrfti engan, að ég væri svo sterkur og þrautseigur að ég gæti ráðið við þetta sjálfur, en það er ekki rétt. Það er mikla hjálp að fá.“