Beint í efni
Forsíðumynd fyrir reynslusögu

Jörð­in stopp­aði og það hægði á öllu í kring­um mig

Jón Auðunn Gunnarsson greindist með krabbamein í blöðruhálskirtli fyrir tæplega ellefu árum. Hann sækir meðal annars styrk í vinnuna og miklar ekki litlu hlutina fyrir sér. 

„Jörðin stoppaði og það hægði á öllu í kringum mig,“ segir Jón Auðunn um líðan sína eftir að hafa fengið greininguna. „Ég missti mig bara. Ég hélt ró minni þangað til ég var kominn niður í bílakjallara. Þar missti ég það bara gjörsamlega, öskraði og lamdi. Sem betur fer þoldi bíllinn það.“ Því næst keyrði Jón Auðunn heim og tilkynnti konu sinni um greininguna. „Þar var annað niðurbrot, sem er náttúrulega bara skiljanlegt. Svo héldum við fund með krökkunum helgina eftir. Eftir það var bara bein lína fram á við og aldrei snúið við.“ 

Jón Auðunn lifir með blöðruhálskirtilskrabbameini og nálgast það af jákvæðni. „Hér er ég í dag og eftir tæplega ellefu ár eftir greiningu er ég ennþá í ferli. Ég er ekki hreinn og verð mjög líklega aldrei hreinn, en ég lifi með þetta og er ánægður með lífið,“ segir hann. „Það sem ég er með að leiðarljósi í dag er að mikla ekki litlu hlutina. Bara láta daginn líða og brosa, hlæja að þessu bara.“ 

Hann segir að mörgum muni eflaust þykja það skrítið, en hann valdi að fara strax aftur að vinna. „Ég sótti styrkinn í vinnuna, þar eru vinir mínir, þar er ég mestan tíma af sólarhringnum. Tala þar um alls konar hluti og líka þetta.“ Hann leggur áherslu á að krabbamein sé ekki feimnismál og að það geti jafnvel verið öðrum hvatning að tala um það. „Ég hélt bara fræðslufundi nánast, í vinnunni.“ Hann segir menn oft staldra við, spyrja hvernig dagurinn sé hjá honum og lauma því síðan að honum að þeir hafi látið kíkja á sig. „Eins og maður segir: That makes my day. Þá er ég ánægður.“