Vertu Velunnari

Mánaðarlegur stuðningur þeirra rúmlega 20.000 einstaklinga og fyrirtækja sem eru Velunnarar er einfaldlega forsenda góðra verka Krabbameinsfélagsins. Án Velunnara væri starfsemin harla fátækleg því þeir bera uppi starfsemi félagsins allt árið um kring, um allt land.

  • Með Velunnurum veitum við stuðning
  • Með Velunnurum eflum við rannsóknir
  • Með Velunnurum bjóðum við heimili að heiman
  • Með Velunnurum styðjum við börnin
  • Með Velunnurum veitum við leiðsögn
  • Með Velunnurum fækkum við tilfellum
  • Með Velunnurum er líf eftir krabbamein

Á undanförnum 50 árum hafa lífslíkur þeirra sem greinast með krabbamein á Íslandi tvöfaldast. Við ætlum að gera enn betur fyrir komandi kynslóðir.

Velunnarar bera uppi starfsemina árið um kring. Taktu þátt í baráttunni með okkur!

 Gerast velunnari

Velunnarar fá endurgreiðslu frá skatti

Frá og með 1. nóvember 2021 áttu rétt á skattaafslætti þegar þú styrkir Krabbameinsfélagið. Krabbameinsfélagið kemur upplýsingum um styrki til Skattsins, sem kemur skattaafslættinum til skila til þín. Nánari upplýsingar á RSK.is.

Dæmi: Einstaklingur sem greiðir 2000 króna styrk til Krabbameinsfélagsins á mánuði fær skattafslátt að fjárhæð 9.100 krónur og greiðir þannig í raun 14.900 fyrir 24 þúsund króna styrk til félagins.

Athugið að endurgreiðslan getur verið bæði hærri og lægri því dæmið er byggt á meðaltekjum sem voru samkvæmt RSK 794.000 árið 2020 en tekjuskattshlutfall er breytilegt. Einstaklingar geta fengið skattaafslátt ef styrkupphæð er á bilinu frá 10.000 til 350 þúsund króna.


Fyrirtæki geta líka fengið skattaafslátt vegna styrkja

Fyrirtæki fengið skattaafslátt sem nemur allt að 1,5% af rekstrartekjum á því ári sem framlag eða gjöf er veitt.

Dæmi: Fyrirtæki sem styrkir Krabbameinsfélagið um 500 þúsund lækkar tekjuskattinn sinn um 100 þúsund krónur. Fyrirtækið greiðir þannig í raun 400 þúsund fyrir 500 þúsund króna styrk til félagsins.

Athugið að dæmið er eingöngu til upplýsinga - sjá nánar á RSK.is  Styrkur eða gjöf nær ekki til kaupa á vörum. Miðað er við algengustu skattprósentu lögaðila, þ.e 20%. Upplýsingar um gjafir og styrki koma árlega frá Krabbameinsfélaginu.


„Við upplifðum þetta þannig að ráðgjafinn hefði gert hvað sem er".

Ráðgjöf og stuðningur án endurgjalds fyrir alla er einungis möguleg vegna stuðnings Velunnara. „Ég veit hreinlega ekki hvernig við hefðum komist í gegnum þetta án Ráðgjafarþjónustunnar. Bæði fyrir pabba okkar – og okkur.“

"Maðurinn minn var að greinast með krabbamein"

Árni Björn og Karen eru ung hjón á Suðurnesjum. Þegar Árni greindist með ristilkrabbamein stóðu þau frammi fyrir ótal spurningum og fengu mikilvæga ráðgjöf hjá Krabbameinsfélaginu. Hjónin vilja þakka Velunnurum Krabbameinsfélagsins fyrir þeirra framlag.

„Systur mínar létust úr krabbameini“

Sigríður Thorlacius, söngkona, hefur verið Velunnari Krabbameinsfélagsins í fjölda ára. 


Þitt framlag skiptir máli

Takk! Allt þetta getum við gert vegna stuðnings Velunnara.


Er einhver lágmarksupphæð?

Það er engin lágmarksupphæð en flestir eru með framlag um 2000 krónur á mánuði. Hvenær sem er er hægt að breyta upphæð. Til að fá endurgreiðslu frá skatti þarf árlegur styrkur að nema að lágmarki 10.000 kr á almanaksári fyrir hvern einstakling.

Er ég skuldbundin/n í ákveðinn tíma?

Velunnarar eru ekki skuldbundnir að styrkja í neinn tiltekinn tíma og geta hætt eða gert hlé á stuðningi sínum hvenær sem er.

Hverjir geta fengið skattaafsláttinn?

Einstaklingar fengið skattaafslátt ef styrkupphæð er á bilinu frá 10 til 350 þúsund krónum á almanaksári. Hámarksupphæð til skattaafsláttar hjá hjónum og sambúðarfólki er 700 þúsund krónur á ári. Frádráttur hjóna og sambúðarfólks er ekki millifæranlegur og ber að halda styrkjum hvers einstaklings aðgreindum.

Hvernig fæ ég skattaafsláttinn?

Krabbameinsfélagið sendir inn upplýsingar um styrki til Skattsins fyrir 20. janúar árlega. Styrkir eru færðir sjálfkrafa á framtal samkvæmt upplýsingum frá Skattinum.

Hvernig breyti ég upphæðinni?

Sendu okkur skilaboð á velunnari@krabb.is eða hringdu í síma 540 1900 og við breytum upphæðinni við fyrsta tækifæri.

Hvaða greiðslumátar eru í boði?

Beingreiðsla á bankareikning eða færsla á kreditkort eru hagstæðustu greiðslumátarnir sem eru í boði. Þannig lágmörkum við kostnað við mánaðarlegar færslur.

Geta fyrirtæki verið með mánaðarlegan stuðning?

Já, fyrirtæki og lögaðilar geta verið Velunnarar.