Beint í efni

Langvinnar og síðbúnar aukaverkanir

Menn á rúmi

Langvinnar og síðbúnar aukaverkanir

Margir glíma við einhvers konar langvinnar eða síðbúnar aukaverkanir sem ýmist eiga rót sína að rekja til meðferðarinnar eða krabbameinsins sjálfs en samkvæmt erlendum rannsóknum búa um 50-60% lifenda við slíkar aukaverkanir.

Áhrif á lífs­gæði og líð­an fólks

Aukaverkanir geta verið til staðar löngu eftir meðferðarlok (langvinnar)  eða gert fyrst vart við sig mánuðum eða jafnvel árum síðar (síðbúnar). Langvinnar og síðbúnar aukaverkanir geta haft áhrif á lífsgæði og líðan fólks og verið áskorun bæði fyrir einstaklinginn sjálfan og aðstandendur en það eru til leiðir til að draga úr áhrifum flestra þeirra.

Sidbunar-aukaverkanir-yfirlitsmynd

Helstu lang­vinnar og síð­bún­ar auka­verk­an­ir

Langvinnar og síðbúnar aukaverkanir eru af ýmsu tagi og geta haft áhrif á líkamlega, andlega og félagslega heilsu. Hér er listi og nánari upplýsingar um þær helstu. 

Óal­geng­ar en al­var­legar síð­bún­ar auka­verk­an­ir

Ráð­gjöf og stuðn­ing­ur þér að kostn­að­ar­lausu

Þjónusta félagsráðgjafa, hjúkrunarfræðinga og sálfræðinga Krabbameinsfélagsins er í boði í greiningarferli, meðferð eða að lokinni meðferð, á íslensku, ensku, pólsku og þýsku. Þjónustan er líka fyrir aðstandendur.

Við­burð­ir og nám­skeið

  • Námskeið

    21. apríl 2026

    Manna­mál - karlar og krabba­mein (2/4)

    Námskeið fyrir karla sem eru með krabbamein eða hafa lokið krabbameinsmeðferð. Námskeið fyrir karla sem eru með krabbamein eða hafa lokið krabbameinsmeðferð. Karlmenn leita sér upplýsinga í minna mæli en konur varðandi margt sem snertir eigin heilsu.  Á námskeiðinu Mannamál viljum við breyta því og ræða þessa hluti um leið og við fræðumst um reynslu annarra.  

  • Námskeið

    22. apríl 2026

    Kynn­ing á nýju úr­ræði til að tak­ast á við streitu sem get­ur fylgt krabba­meini - mið­viku­dag­inn 22. apríl

    Margir upplifa streitu í tengslum við krabbamein.  

    Krabbameinsfélagið, í samstarfi við Nature and Forest Therapy Iceland og Skógræktarfélag Reykjavíkur, býður nú upp á kynningu á japönsku útivistinni Shinrin-yoku, gagnreynda aðferð til streitulosunar og endurheimtar í náttúrunni.

  • Viðburðir

    27. apríl 2026

    Flugu­hnýt­ingar alla mánu­daga

    Er ekki kjörið að hnýta sínar eigin flugur?

  • Viðburðir

    28. apríl 2026

    Gott út­lit

    Snyrtinámskeið ætlað konum sem eru í krabbameinsmeðferð. Farið er í grundvallaratriði í umhirðu húðar og veittar leiðbeiningar um förðun.