Beint í efni
skuggi

Nám­skeið um lang­vinnar og síð­bún­ar auka­verk­an­ir

Námskeið fyrir einstaklinga sem finna fyrir langtímaaukaverkunum eftir krabbameinsmeð­ferð.

Um nám­skeið­ið

Námskeið fyrir einstaklinga sem finna fyrir langtímaaukaverkunum eftir krabbameinsmeð­ferð.

Á námskeiði er fjallað um nokkra af algengustu síðbúnu og langvinnu fylgikvillunum sem geta komið fram í kjölfar krabbameins og krabbameinsmeðferðar. Þessir fylgikvillar geta haft áhrif á andlega, líkamlega og félagslega heilsu. 

Þátttakendur fá meðal annars fræðslu um þreytu, svefn, hreyfingu, næringu, óttan við að greinast aftur, andlega líðan, minni, einbeitingu og streitustjórnun. Rætt verður um leiðir til að efla eigin heilsu og bæta líðan, auk þess sem þátttakendum gefst tækifæri til að hitta aðra í svipuðum sporum.

Námskeiðið er ætlað þeim sem hafa lokið krabbameinsmeðferð og finna fyrir síðbúnum eða langvinnum aukaverkunum. Miðað er við að sex mánuðir eða lengra sé liðið frá því krabbameinsmeðferð lauk.

Námskeiðið er haldið í húsnæði Krabbameinsfélagisns, Skógarhlíð 8. Námskeiðið er í fjögur skipti u.þ.b. 2,5 klukkustund í senn.

Ýmsir sérfræðingar koma að námskeiðinu með erindi og fræðslu.

Skráning og nánari upplýsingar er á radgjof@krabb.is eða í síma 800 4040. Ekkert þátttökugjald.