Beint í efni

Vill fyr­ir­byggja mynd­un mein­varpa

Guðrún Valdimarsdóttir rannsakar samskipti brjóstakrabbameinsfruma við umhverfið, sem gæti haft áhrif á meðferðarmöguleika.

Þótt batahorfur kvenna með brjóstakrabbamein séu almennt góðar stafar ógn af mögulegri meinvarpamyndun. Guðrún Valdimarsdóttir, sameindalíffræðingur og dósent við læknadeild Háskóla Íslands, vill skilja í þaula samspil æðaþels og brjóstakrabbameinsfruma á sameindafræðilegum grundvelli með tilliti til hinnar margslungnu TGF-beta boðleiðar.

„Þekkingin sem verkefnið skapar hefur gífurlegt gildi þegar litið er til meðferðarmöguleika með sértæku sameindalyfi fyrir brjóstakrabbameinssjúklinga til að fyrirbyggja myndun meinvarpa.“

Verkefnið Samspil TGF-beta-boðleiðarinnar og Thrombospondin-1, áhrif á samskipti æðaþels- og brjóstakrabbameinsfruma hefur hlotið styrki úr Vísindasjóði Krabbameinsfélagsins í þrígang, 6,3 milljónir króna árið 2017, 6,5 milljónir króna árið 2018 og 6,5 milljónir króna árið 2019.

Í myndbandinu segir Guðrún frá verkefninu þegar hún tók við fyrsta styrknum árið 2017.

Helga Þráinsdóttir var ein þeirra sem vann við verkefnið og hér má lesa meistaraprófsritgerð hennar:  Samspil TGFβ og Thrombospondin 1 í æðaþeli og brjóstakrabbameini.