Beint í efni

Vilja auka þekk­ingu á ólækn­andi sjúk­dómi

Erna Magnúsdóttir rannsakar hvernig frumuumhverfi beinmergs heldur krabbameinsfrumum lifandi og stuðlar að viðnámi við meðferðum. 

Waldenströms sjúkdómur (WS) er tegund af eitilfrumukrabbameini sem hrjáir helst fólk yfir 65 ára aldri. Æxli vaxa í beinmerg sjúklinga og seyta miklu magni af mótefni sem veldur því að blóðið verður seigfljótandi og nær ekki að flæða um háræðar og vefir skemmast. Til þessa hefur verið nær ógerlegt að halda æxlisfrumum lifandi í ræktun nógu lengi til að skoða áhrif lyfja á þær, en slíkt hægir gríðarlega á framförum í lyfjaþróun við sjúkdómnum. Að sama skapi er þekkt að æxlisfrumurnar eru einstaklega háðar umhverfi sínu í beinmerg, en hingað til hefur verið erfitt að rannsaka hvaða þættir það hafa verið í beinmergnum sem stuðla að lifun og fjölgun æxlisfruma. Sjúkdómurinn er enn ólæknandi, þótt nýrri meðferðir hafi aukið lífsgæði og lífslíkur sjúklinga til muna. 

Hópurinn sem vinnur að rannsókninni er með fjölbreyttan bakgrunn og hefur reynslu af erfðabreytingum, ræktun á fjölhæfum stofnfrumum, auk sérþekkingar á Waldenströms sjúkdómnum. Rannsóknin gengur út á að nota stofnfrumur til að þroska örlíffæri sem líkja eftir beinmerg. Forstigsniðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að frumurnar lifi ekki bara af heldur fjölgi sér einnig yfir tveggja vikna tímabil í örlíffærunum. Með því haldast æxlisfrumurnar lifandi mun lengur en áður hefur þekkst og gefur það tækifæri til skoðunar á því hvernig frumuumhverfi beinmergs heldur frumunum lifandi og hvernig það gæti aukið viðnám gegn meðferðum.  

Rannsóknin Kortlagning víxlverkana frumuvistar og Waldenström Macroglobulinaemia æxla með notkun sjálfskipuleggjandi örlíffæra beinmergs hlaut 12 milljóna króna styrk úr Vísindasjóði árið 2026.