Stuðla að markvissari og einstaklingsmiðaðri meðferð við brjóstakrabbameini
Stefán Sigurðsson rannsakar hvað gerir sum estrógenviðtaka jákvæð brjóstakrabbamein verri en önnur.
Almennt hafa konur með estrógenviðtaka jákvætt brjóstakrabbamein góðar horfur. Rannsóknir sýna þó að tveir hópar kvenna virðast skera sig úr og hafa lakari lifun. Annars vegar eru það konur sem bera BRCA2 stökkbreytingu, sem er tiltölulega algeng á Íslandi og hins vegar ungar konur (≤40 ára) sem greinast með brjóstakrabbamein. Í þessum hópum virðist sjúkdómurinn oftar vera slæmur og lífslíkur verri en búast mætti við miðað við gerð æxlisins. Ástæður þess eru enn óþekktar og í dag eru þessir sjúklingar almennt meðhöndlaðir á sama hátt og aðrir sjúklingar með estrógenviðtaka jákvæð æxli en líklegt er að þeir þurfi markvissari og einstaklingsmiðaðri meðferð.
Markmið rannsóknarinnar er að varpa ljósi á líffræðina sem liggur að baki þessari verri lifun sjúklinganna og skilja betur hvað gerir sum estrógenviðtaka jákvæð brjóstakrabbamein verri en önnur. Betri skilningur á þeim líffræðilegu þáttum sem tengjast verri útkomu getur stuðlað að nákvæmari áhættumati og markvissari meðferð fyrir konur sem tilheyra þessum áhættuhópum. Til lengri tíma litið getur rannsóknin þannig stuðlað að bættri lifun og einstaklingsmiðaðri meðferð íslenskra brjóstakrabbameinssjúklinga.
Rannsóknin Líffræðilegar skýringar á lakari lifun í BRCA2-tengdu og snemmkomnu estrógenviðtaka jákvæðu brjóstakrabbameini hlaut 12 milljóna króna styrk úr Vísindasjóði árið 2026.
