Spálíkan beri kennsl á sjúklinga sem þurfi aukinn stuðning og eftirfylgni
Ólöf Kristjana Bjarnadóttir rannsakar meðferðarheldni innkirtlameðferðar við hormónajákvæðu brjóstakrabbameini með það að markmiði að þróa klínískt spálíkan.
Brjóstakrabbamein eru algengustu krabbameinin hjá konum á Íslandi. Rúmlega 70% brjóstakrabbameina eru hormónajákvæð, þ.e. þau tjá estrógen viðtaka. Konur með hormónajákvæð brjóstakrabbamein fá innkirtlameðferð eftir að annarri meðferð er lokið sem minnkar líkur á endurkomu og bætir lifun. Þetta er töflumeðferð sem stendur í a.m.k. fimm ár eftir greiningu krabbameinsins og mikilvægt er að meðferðin sé tekin rétt í þann tíma sem ráðlagt er.
Fyrstu niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að meðferðarheldni hormónameðferðar á Íslandi mætti vera meiri. Til þess að geta bætt hana og þar með einnig horfur kvenna með hormónajákvæð brjóstakrabbamein er mikilvægt að kortleggja stöðuna og þá þætti sem hafa áhrif á hana og er það markmið rannsóknarinnar. Með klínísku spálíkani væri hægt að bera kennsl á þá sjúklinga sem eiga í aukinni hættu á að fylgja ekki meðferð og beita markvissum aðgerðum til að auka stuðning og eftirfylgni hjá þeim hóp.
Rannsóknin Meðferðarheldni innkirtlameðferðar í hormónajákvæðu brjóstakrabbameini á Íslandi 2008-2023 hlaut 11,7 milljóna króna styrk úr Vísindasjóði árið 2026.
