Beint í efni

Rann­saka áhrif krabba­meina á lífs­gæði til að bæta þjón­ustu

Sigríður Gunnarsdóttir rannsakar hvaða hópar eru í mestri hættu á skertum lífsgæðum eða óuppfylltum þörfum eftir greiningu krabbameins. 

Með bættri greiningu og meðferð lifa sífellt fleiri lengur eftir að hafa fengið krabbamein. Margir þurfa þó að takast á við langvinnar og síðkomnar afleiðingar sem geta haft áhrif á líkamlega, andlega og félagslega líðan og þar með heilsutengd lífsgæði. Markmið rannsóknarinnar er að kanna heilsutengd lífsgæði, heilsutengdar þarfir og heilsulæsi þeirra sem hafa lokið krabbameinsmeðferð á Íslandi, og meta að hvaða marki þörfum þeirra er mætt. Sérstök áhersla er lögð á að greina svokallaðar óuppfylltar þarfir, eða þegar að einstaklingar telja sig þurfa faglega aðstoð en hafa ekki fengið hana. 

Með því að sameina upplýsingar úr krabbameinsskrá, opinberum skrám, og svörum þátttakenda við stöðluðum mælitækjum um lífsgæði, þarfir, og heilsulæsi verður til heildræn mynd af stöðu þeirra sem hafa lokið krabbameinsmeðferð hér á landi. Jafnframt bætist við ný og mikilvæg þekking um hvernig þessir þættir tengjast og hvort heilsulæsi geti verið lykilþáttur í að skýra mismunandi stöðu þeirra sem hafa lokið meðferð við krabbameini m.t.t. lífsgæða og óuppfylltra þarfa. Kortlagning algengustu þarfa og tengsla þeirra við heilsulæsi og lífsgæði skapa grundvöll fyrir markvissari, einstaklingsmiðaðri og heilsulæsismeðvitaðri þjónustu. Niðurstöðurnar geta þannig stuðlað að betri forgangsröðun úrræða, skilvirkari nýtingu heilbrigðisfjármuna, og auknu jafnræði í þjónustu við þennan sístækkandi sjúklingahóp. 

Rannsóknin Óuppfylltar þarfir fyrir heilbrigðisþjónustu eftir lok krabbameinsmeðferðar á Íslandi og tengsl þeirra við lífsgæði og heilsulæsi: Lýðgrunduð þversniðsrannsókn hlaut 12 milljóna króna styrk úr Vísindasjóði árið 2026.