Beint í efni

Kyn­líf og nánd eft­ir grein­ingu krabba­meins

Erla Kolbrún Svavarsdóttir og Jóna Ingibjörg Jónsdóttir þróa meðferð fyrir konur með krabbamein og maka og meta áhrif á aðlögun tengda kynlífi og nánd.

Greining og meðferð krabbameins er fyrirséður álagsvaldur í sambandi við kynlíf og nánd og skortur er á rannsóknum um þetta efni. Tilgangur verkefnisins er að þróa og meta árangur meðferðar fyrir pör þar sem konan hefur greinst með krabbamein í því skyni að efla aðlögun tengda kynlífi og nánd.

Verkefni Erlu Kolbrúnar Svavarsdóttur, hjúkrunarfræðings og prófessors, Þróun meðferðarsamræðna við konur með krabbamein og maka og áhrif samræðna á aðlögun tengda kynlífi og nánd, hlaut styrki úr Vísindasjóði Krabbameinsfélagsins árin 2017 og 2018, 2 milljónir króna hvort árið fyrir sig. Nú hafa 60 pör lokið meðferðinni.

Í myndbandinu er rætt við Jónu Ingibjörgu Jónsdóttur, hjúkrunar- og kynfræðing, sem vinnur að rannsókninni ásamt Erlu.