Beint í efni

Bætt með­ferð að leið­ar­ljósi

Margrét Helga Ögmundsdóttir rannsakar gen sem hefur áhrif á hvort krabbameinsfrumur lifi eða deyi.

Krabbameinsfrumur hafa óreglulega stjórnun á niðurbroti og hreinsun (sjálfsáti). Hreinsunarferlið er talið vernda gegn krabbameinsmyndun en síðar er ferlið mikilvægt krabbameinsfrumum til þess að lifa af erfiðar aðstæður. Verkefnið gengur út á að skilgreina hlutverk nauðsynlega sjálfsátsgensins ATG7 í krabbameinum, með það að markmiði að bæta greiningar- og meðferðarmöguleika.

„Markmið okkar er að varpa ljósi á hlutverk hreinsunar og niðurbrots í krabbameinsfrumum. Við höfum það að leiðarljósi að þekkingin nýtist til þess að bæta meðferðarmöguleika og erum við gríðarlega þakklát að hljóta styrk Vísindasjóðsins til verkefnisins.“

Verkefni Margrétar, Hlutverk sjálfsátsgensins ATG7 í þróun krabbameina, hlaut 5 milljóna króna styrk árið 2019 og 7,5 milljóna króna styrki árin 2017 og 2018 úr Vísindasjóði Krabbameinsfélagsins. Styrkurinn var nýttur fyrir laun nýdoktors og doktorsnema.

MYND/Kristinn Ingvarsson