Sortuæxli og önnur húðkrabbamein

Hvað veistu?

Mikilvægt er að fara varlega í sólinni, nota ekki ljósabekki og vera vakandi fyrir nýjum fæðingarblettum eða breytingum á þeim sem eru til staðar. 



1Það er nær alltaf hægt að lækna húðkrabbamein ef það greinist á snemmstigum. 

Rétta svarið er: "Rétt"

Það er langoftast hægt að lækna algengustu húðkrabbameinin; grunnfrumkrabbamein , flöguþekjukrabbamein og sortuæxli, ef þau eru greind nægilega snemma. Sortuæxlin eru þó hættulegust. Ef þau ná að vaxa niður í húðina og inn í sogæðar eða blóðæðar geta sortuæxlisfrumurnar dreift sér um líkamann og myndað meinvörp. Á því stigi er það illviðráðanlegt og oftast ólæknanlegt. Því er mikilvægt að greina það á byrjunarstigi.


2Húðkrabbamein er eitt algengasta krabbameinið á Íslandi.

Rétta svarið er: "Rétt"

Yfir 220 einstaklingar greinast árlega með húðkrabbamein á Íslandi.  Af þeim látast um 14 á ári, flestir af völdum sortuæxlis. Mikil aukning varð á ákveðnu tímabili í tíðni sortuæxla hér á landi sem tengdist notkun ljósabekkja og auknari sólarlandaferðum. 


3Húðkrabbamein er eitthvað sem ungt fólk ætti ekki að hafa áhyggjur af.

Rétta svarið er: "Rangt"

 

Þó svo að tíðni sortuæxla og annarra húðkrabbameina aukist með aldrinum þá fær ungt fólk líka sjúkdóminn. Einnig eru þau sem eiga sögu um að hafa verið mikið óvarin í sól eða notað ljósabekki á yngri árum líklegri til að fá slík mein síðar á ævinni.


4Ljósabekkir eru ekki jafnhættulegir og sólin.

Rétta svarið er: "Rangt"

 

Að fá á sig útfjólubláa geisla (UV-geisla) er stærsti áhættuþáttur húðkrabbameina. Þó svo að sólin sé aðaluppspretta útfjólubláu geislanna þá senda ljósabekkir einnig slíka geisla frá sér. Fólk sem fær á sig mikið af útfjólubláum geislum, hvort heldur sem er frá sólinni eða ljósabekkjum, er í aukinni áhættu að fá húðkrabbamein .


5Fólk sem er dökkt á hörund fær ekki húðkrabbamein.

Rétta svarið er: "Rangt"

 

Sólargeislar og geislar frá ljósabekkjum geta haft áhrif á húð og augu allra, óháð litarhafti og augnlit. Fólk með ljósa húð er þó mun líklegra til að fá sólarskemmda húð en fólk sem er dökkt á hörund. Fólk með dökka húð er ólíklegra til að fá sortuæxli á svæði eins og fótleggi, bak og bringu. Um helmingur sortuæxla hjá þeldökku fólki greinist á lófum og iljum en um eitt af hverju tíu hjá einstaklingum sem eru ljósir á hörund.


6Auðvelt er að þekkja húðkrabbamein, það byrjar alltaf sem dökkleitur blettur.

Rétta svarið er: "Rangt"

 

Húðkrabbamein geta birst á margskonar hátt. Litur þeirra getur verið dökkbrúnn, rauður, gráleitur, svartur og  lögun og stærð verið mismunandi. Meðal einkenna sem geta bent til húðkrabbameins eru nýir fæðingarblettir sem birtast eða hverskonar breytingar á blettum, t.d. stærð, lögun eða litur. Einnig ef fæðingablettir eru óreglulegir að lögun, með fleiri en einn lit í sér eða ef klæjar í fæðingarblett og líka ef einn blettur er ólíkur öðrum á húð einstaklings. Að auki getur sár sem ekki grær verið merki um húðkrabbamein.

Erfitt getur verið að átta sig á muninum á eðlilegum bletti og húðkrabbameini og því mikilvægt að leita til læknis, t.d. húðsjúkdómalæknis ef þú ert með einhver ofangreindra einkenna. 


7Því lengur sem ég er í sólinni því betur venst húðin henni og líkur á húðkrabbameini minnka.

Rétta svarið er: "Rangt"

 

Því lengur sem þú ert í sólinni því meiri skaða getur þú orðið fyrir. Húð sem verður brún er í raun merki um að húðin hefur orðið fyrir skaða af völdum útfjólublárra geisla. Til langs tíma getur það valdið ótímabærri öldrun húðar með tilheyrandi hrukkum, línum og minnkuðum teygjanleika húðar ásamt öldrunarblettum og öðrum blettum sem breyst geta í húðkrabbamein .


8Eingöngu þarf að huga að því að verja húðina gegn útfjólubláum geislum.

Rétta svarið er: "Rangt"

 

Fólk ætti líka að verja augun þar sem úttfjólubláir geislar geta skaðað þau, m.a. valdið skýi á auga auk annarra augnvandamála. Einnig geta sortuæxli myndast í auga. 


9Að hafa brunnið á húð fyrir 18 ára aldur eykur hættu á húðkrabbameini.

Rétta svarið er: "Rétt"

 

Húð barna er þynnri og viðkvæmari en þeirra sem eldri eru. Þeir sem hafa brunnið í sól eða ljósabekk eru í aukinni hættu á að fá húðkrabbamein , sérstaklega sortuæxli. Þeir sem hafa ljósa húð, húð sem brennur auðveldlega eða hafa marga fæðingabletti eru einnig viðkvæmari.


10Því hærra sem ég geng á fjöll því minni líkur eru á að brenna.

Rétta svarið er: "Rangt"

 

Því hærra sem þú ert frá sjávarmáli því meiri líkur eru á að brenna.


11Skýin veita EKKI örugga vörn fyrir sólargeislum.

Rétta svarið er: "Rétt"

 

Umtalsverður hluti sólargeisla sleppur í gegnum skýin auk þess sem sólargeislar endurspeglast á sjó, vatni og snjó. Til dæmis getur fólk brunnið á svæðum sem eru í skugga frá sól en snúa að snjó eða vatni.


12Maður finnur það þegar maður er að brenna því þá hitnar húðin.

Rétta svarið er: "Rangt"

 

Þú finnur ekki fyrir útfjólubláu geislunum, þeir gefa ekki frá sér hita. Það eru hinsvegar innrauðir geislar sólarinnar sem gefa frá sér hita en þeir valda ekki bruna.

13Brúnkukrem eru öruggari en sólböð og ljósabekkjanotkun

Rétta svarið er: "Rétt"

Þeir sem vilja dekkja húðlit sinn ættu frekar að nota brúnkukrem en að liggja í sólbaði eða ljósabekkjum. 

 


14Húðkrabbamein myndast eingöngu á þeim húðsvæðum sem útfjólubláir geislar hafa skinið á.

Rétta svarið er: "Rangt"

Grunnfrumukrabbamein og flöguþekjukrabbamein myndast oftast á svæðum sem hafa verið útsett fyrir mikilli sól, t.d. höfði, hálsi og handleggjum en geta þó komið fram víðar á líkamanum. Sortuæxli myndast oft í fæðingablettum og koma frekar fram þar sem húð hefur verið útsett fyrir sólargeislum en geta þó komið fram hvar sem er á líkamanum, líka á stöðum sem sjaldan eða aldrei skín á. 

Ef þú ert með einkenni sem þú telur að geti bent til húðkrabbameins ættir þú að leita til heimilislæknis eða húðsjúkdómalæknis.

 

 


Var efnið hjálplegt?