Styrkleikarnir í Vestmannaeyjum
Styrkleikar Krabbameinsfélagsins sýna samstöðu og samkennd þar sem allir geta látið gott af sér leiða fyrir einstaklinga sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendur þeirra.
Á Styrkleikunum kemur fólk saman og skiptist á að ganga í fyrir fram ákveðinn tíma. Það er táknræn leið til að sýna þeim sem greinst hafa með krabbamein að samfélagið stendur með þeim allan leið. Hver og einn gengur á sínum hraða og eftir sinni getu.
Viðburðurinn er fjölskylduvænn og býður upp á einstaka upplifun fyrir alla, óháð aldri. Þátttakendur skiptast á að ganga með boðhlaupskefli í sólahring, sem er táknrænt fyrir að engin hvíld fæst frá krabbameini.
