Beint í efni
Bleiktbod-selfoss

Sel­foss - Bleikt boð

Krabbameinsfélag Árnessýslu stendur fyrir Bleiku boði föstudagskvöldið 9. október á Hótel Selfossi. Húsið opnar kl.19:00 og hefst dagskrá kl.20:00

Veislustjóri kvöldsins verður Gabríel Werner, Anna Margrét hjúkrunarfræðingur slær á létta strengi og Bleika bandið Bland og vinir spila fyrir dansi.

Undanfarin ár hefur verið húsfylli og mikil gleði!

Aðgangseyrir 3.500 kr., veitingar í boði Veitingastaðar Hótel Selfoss.

Fyrstu 100 konurnar og 50 karlarnir fá gjafapoka.
Árlega uppboði verða á sínum stað og Happdrættið verður glæsilegt að venju. Hver happdrættismiði kostar einungis 2.500 krónur og er til mikils að vinna.

Athugið að ef stærri hópar ætla að mæta, er mögulegt að panta borð fyrirfram með því að senda tölvupóst á arnessysla@krabb.is