Beint í efni
Hönd styður við stólbak

Sauð­ár­krók­ur - Við­töl hjá ráð­gjafa KÍ

Ráðgjafi frá Krabbameinsfélaginu verður á Sauðárkróki, 21. janúar

Ráðgjafi frá Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins verður á Sauðárkróki, miðvikudaginn 21. janúar. Viðtölin verða á Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Sauðárkróki.

Viðtölin eru í boði bæði fyrir einstaklinga sem greinst hafa með krabbamein, aðstandendur og syrgjendur. Þjónustan er öllum opin, endurgjaldslaust. Við hvetjum einstaklinga í nágranna sveitarfélögunum til að nýta sér þjónustuna.

Til að bóka viðtal er hægt að hringja í Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis í síma 461-1470 eða með því að senda póst á kaon@krabb.is