Opnir tímar: Fjölskyldustundir
Í fjölskyldustundum er unnið að því að efla sjálfstraust, sjálfskærleik, slökun og innra jafnvægi í gegnum hugleiðslu og sjálfstyrkjandi æfingar.
Stundirnar eru ætlaðar fjölskyldum þar sem fjölskyldumeðlimur hefur greinst með krabbamein. Börn á grunnskólaaldri og fjölskyldur þeirra eru hjartanlega velkomin.
Fjölskyldustundirnar eru haldnar fimmtudagana 18. september og 16. október, kl. 16:30 – 17:30 í húsnæði Krabbameinsfélagsins, Skógarhlíð 8.
Leiðbeinandi er Stefanía Ólafsdóttir, grunnskólakennari og hugleiðsluleiðbeinandi.
Skráning og nánari upplýsingar er á radgjof@krabb.is eða í síma 800 4040. Ekkert þátttökugjald.